18.10.2006
Anton og Þerna eftir sigur á Stjörnutölti 2006.
Þá er búið að ákveða dagsetningu sem Stjörnutöltið
verður haldið á næsta vetri. Það mun vera 31. mars
2007 sem mæst verður á norðlenskum ís í
Skautahöllinni á Akureyri.
17.10.2006

Þá er íbúðin okkar til sölu. Ránargata 12 n.h. 600
Akureyri. S E L D.
14.10.2006

Karlinn með tommustokkinn! Þakið á
skálnum mælt en fyrir liggur að skipta um þak á þeim
hluta sem fer undir hesthús. Væntanlega bíður það
vorsins sökum tímaleysis.
08.10.2006

Skruppum í tvennar stóðréttir um
helgina. Á laugardaginn fórum við í Tungurétt í
Svarfaðardal og í dag, sunnudag, í Þverárrétt í
Eyjafirði. Báðar þessar réttir skemmtilegar á sinni
hátt og ólík hross. Mikið af litskrúðugum hrossum á
báðum stöðum. Myndirnar hér að ofan eru úr Þverárrétt í
dag.
03.10.2006

Komið haust í herbúðir hrossa og manna í
Fornhaga II. Folaldshryssurnar eru þó enn heima við bæ
að kroppa en fara um næstu helgi í nýtt, stórt hausthólf
og verða þar fram að áramótum að líkindum.
29.11.2006

Blikkjálkarnir sem auglýstir voru gefins hér neðar á
síðunni hafa fengið heimili. Rússinn kominn til eiganda
síns og Doddinn fékk nýjan eiganda í dag þegar Þorsteinn
Gústafsson úr Fellabæ sótti jálkinn. Það frábæra við
það allt saman var að Þorsteinn kom á hertrukk sem er um
45 ára gamall að sækja Doddann sem er líklega um 55 ára
gamall.
20.09.2006

Gustur frá Hóli er laus til útleigu. Sjá
nánar á www.hryssa.is
18.09.2006

Snemma beygist krókurinn. Þarna er Ævar
Ottó (6 mán.) að spjalla við Fló (9 vetra) um daginn og
veginn. Ótrúlegt hvað hross geta sýnt svona litlu fólki
mikla þolinmæði. Hross eru skynsamar skepnur.
13.09.2006

Haustar að.....Spá þó enn á járnum en nú
styttist í orlof hjá henni. Búið að ganga frá þjálfun
og sýningu á henni fyrir næsta vetur/vor en
Inga og
Toni taka hana í frekari skóla og stefnt er á
kynbótadóm vor 2007.
11.09.2006
Þessir tveir gömlu blikkjálkar fást gefins. Þeir munu
enda ævidagana í járnaportinu í lok vikunnar ef ekki
næst að gefa þá á gott heimili (eins og sagt er um önnur
gæludýr). Þetta er Dodge pickup, eldgamall m. spili og
fylgja honum tvær hurðir (sem ekki eru á myndinni) og sá
svarti er rússajeppi. Áhugasamir hringi í Arnar í síma
893-1579 fyrir föstudag.
07.09.2006
Göngur og réttir á laugardaginn. Ef smellt er á myndina
hér til hliðar má sjá rauðan hring efst í
fjallshlíðinni. Þarna uppi voru 5 kindur í dag og
verður sá ekki öfundsverður sem þarf að koma þeim niður
á rétt....! Þvílíkur bratti þarna og kindurnar ótrúlega
ofarlega.
03.09.2006

Það var gleði, gleði, gleði í dag á
Akureyri en þá var tekin fyrsta skóflustungan að
reiðhöll á svæði hestamannafélagsins Léttis. Mögnuð
stund og sólin sá ástæðu til að kíkja á hestamenn og
konur á meðan á þessari athöfn stóð. Sumir skelltu sér
svo bara í berjamó....í Léttisgallanum!
03.09.2006

Árlegt Bjargarmót Framfara fór fram í gær en það er
bæjarkeppni með "frjálslegu" ívafi. Skemmtileg uppákoma
í alla staði. Á myndinni má sjá Vigni Sigurðsson og
Ríkarð Hafdal hampa stórum bikar. Vignir sigraði opna
flokkinn á nýjum keppnishesti, Þráni frá Þinghóli, og
keppti fyrir Glæsibæ II.
Hér má sjá öll úrslit Framfaramótsins.
01.09.2006
Sandra með litskrúðugan hóp!
Arnar fylgir hrossunum í nýtt hólf.
Stóðréttir í Fornhaga II. Hrossin rekin inn, gefið
ormalyf, klipptir hófar og þau svo sett í nýtt hólf.
01.09.2006
Kíktum á stóðhestana Sám og Maur í rigningunni. Þeir
voru báðir í hryssum í sumar og bíða nú vetrarins en
væntanlega fer Sámur (4v.) í frekari tamningu en Maur
(2v.) vonandi tekinn á hús og byrjað að dunda eitthvað
með hann. Ekki annað að sjá en að þeim líði vel í blautu
haustveðrinu enda hitinn ennþá í tveggjastafa tölum.
18.08.2006
Heyskap lokið í
Fornhaga II.
17.08.2006
Á báðum myndunum er Maur til vinstri og Sámur til
hægri.
Settum graðhestana Maur og Sám í hólf hjá okkur í dag.
Maur frá Fornhaga II 2ja vetra undan Rökkva frá
Hárlaugsstöðum og Sám frá Litlu-Brekku 4v. undan Garpi
frá Auðsholtshjáleigu en Sámur er í eigu Vignis og
Jónínu í Litlu-Brekku. Þeir voru sprækir folarnir þegar
við settum þá í hólfið í dag.
16.08.2006

Spá frá Staðartungu, 6v. móálótt undan Þorra frá Þúfu og
Væntingu frá Ási. Spá er efnileg hryssa, svona fjór- og
hálfgangari eins og er en er undan mikilli skeiðhryssu
og á væntanlega eftir að opna fyrir skeiðið síðar. Spá
er stór og myndarleg, viljug og skemmtileg reiðhryssa.
Stefnan er eitthvað á keppnir og vonandi í kynbótadóm
næsta vor. Spennandi tímar framundan með hana Spá.
14.08.2006
Fanndís og Nanna stóðu efstar í barnaflokki á
Einarsstöðum.
Komin heim af Einarsstöðum. Þar voru mörg
eftirtektarverð hross og gott veður jók á ánægjuna fyrir
gesti og keppendur. Stórgott mót sem býður upp á mikla
breidd keppenda og hrossa.
Úrslit fullorðins flokkar.
Úrslit yngri flokkar.
12.08.2006

Skruppum á Einarsstaði í dag. Gott veður
og mikil breidd hrossa.
Hér má sjá stöðuna eftir forkeppni.
08.08.2006
Það
var boðið upp á kaffi og með því í Fornhaga II í dag
þegar sónað var frá Asa frá Kálfholti en hann var hjá
okkur í fyrra tímabili í sumar. Það var mikið og gott
hjálparlið mætt til leiks til að allt færi nú eins vel
fram og hugsast gat. Elfa Ágústsdóttir, dýralæknir,
sónaði hryssurnar á einum klukkutíma og hlýtur það að
teljast nokkuð góður árangur. Núna þegar átta dagar eru
liðnir frá því að Asi fór voru 17 hryssur af 20 sónaðar
klárlega fengnar og því enn von að bætist í þann hóp
þegar frá líður. Það er því 85% fyljun miðað við fyrstu
tölur. Frábær árangur og vonandi enn betri með síðari
fréttum af þessum þrem hryssum. Eins og stundum þegar
mikið er um að vera....gleymdist að taka upp myndavélina
og því engin mynd til að sýna "dugnaðinn" í mannskapnum.
Hér er Asi rétt áður en hann hélt til
heimkynna sinna. Faxprúður og stoltur kappi sem
virkilega var gaman að hafa hjá okkur hér fyrir norðan
enda ætlast allir til að fá einn svona Röðul frá
Kálfholti eða svo undan sinni hryssu.
01.08.2006

Þá er það komið! Húsið risið á innan við
24 klst. Alveg magnað.
31.07.2006

Þá er það að verða að veruleika að
húskofinn okkar fari að rísa upp úr jörðinni.
30.07.2006
Fórum og litum á hrossin í Stóru-Brekku í dag. Það er
ekki hægt að segja annað en að þau standi á kafi í
grasi. Þvílíkt gras sem þau hafa....
Allir á kafi....
Efi étur bara efstu stráin....
Doppa skoppa....
Börkur og litla rauðka hans Atla....
Traffík og Hálfdán.....
Kolur ofurfeiti...
Traffík, Hálfdán, Adda og Bruni. Glittir í Heklu á
bakvið.
30.07.2006
Asi frá Kálfholti tekinn úr hryssunum í dag og farinn í
heimahagana. Jónas bóndi í Kálfholti sótti hann sjálfur
til okkar og var ekki annað að sjá en að Asa hafi líkað
vistin í Fornhaga vel því hann var feitur og fallegur
þegar hann yfirgaf hryssuhópinn. Ætlunin er að sóna
hryssurnar eftir rúma viku eða svo.
27.07.2006
Asi frá Kálfholti hefur verið í hryssum hjá okkur í
sumar og verður í rúmar sex vikur hjá okkur. Við færðum
Asa og hryssurnar um daginn í nýtt hólf sem við vorum að
girða og þar er grasið í kvið þannig að allir hafa nóg
að bíta og brenna.
Asi á kafi í grasi...
Hér er hluti hryssuhópsins...þetta er litskrúðugur
hópur.
Hryssurnar komnar í nýja hólfið....
.. bærinn Brakandi í baksýn.
Asi í fagurri fjallasýn.
Hvar er Asi?

Svo þarf maður líka að velta sér.....
25.07.2006

Af grasi er þar nóg.....
16.07.2006

Skruppum í heimsókn í hólfið til Asa og
smelltum þessum myndum af Asa og þeim frænkunum Fregn og
Fornöld.
08.07.2006
Á leið heim frá Hvanneyri. Auðunn fékk að viðra sig við
komuna yfir í Skagafjörð.
06.07.2006

Girðingarvinna og tiltektir eru daglegt brauð.
27.06.2006

Skruppum á Landsmót. Þar var mjög gott
veður og strax komið mikið af fólki en við létum okkur
nægja að vera frá þriðjudegi. Kynbótahrossin stóðu
algerlega uppúr enda alltaf gaman að sjá þessi ungu
getumiklu hross.
26.06.2006

Þetta er hún Fregn frá Fornhaga II
(brúnblesótt, leistótt m. vagl) sem fæddist um daginn og
Farði frá Fornhaga II (slettuskjóttur). Pabbi þeirra,
Ægir frá Móbergi, var að gera það gott í dag í keppni í
ungmennaflokki á Landsmóti hestamanna í Skagafirði en
þar er hann og Ragnhildur Haraldsdóttir í 2.-4. sæti með
einkunina 8,50 eftir forkeppnina. Frábær árangur hjá
okkar fólki en Ragnhildur, Oddný Lára (21. sæti) og Þóra
Kristín (30. sæti) komust allar í milliriðil í
ungmennaflokki.
25.06.2006

Heyskapur í
Fornhaga II. Búið að "þrífa" túnin og rúlla
sinublönduðu heyinu í rúllur. Fengum 29 rúllur af
þessum tveim stykkjum og nú er hægt að fara að bera á og
vonast eftir alvöru uppskeru.
21.06.2006

Í dag fæddist þessi skvísa, Fregn frá Fornhaga II,
svartblesótt, leistótt, með vagl í auga. Hún er undan
Fló frá Akureyri og Ægi frá Móbergi. Arnar fékk þarna
algjörlega draumalitinn og þegar hann kemur í hryssu
(liturinn) verður hamingjan enn meiri. Vonandi verður
hún síðar ræktunarhryssa í Fornhaga II.
20.06.2006

Gengum í fjallið. Ægifagurt um að litast og eins og
segir: "Fögur er hlíðin og bæirnir allt í kring..."
Miklar framkvæmdir í gangi þar sem húsbyggingin er komin á fullan
skrið.
19.06.2006

Asi frá Kálfholti kom í Fornhaga í dag. Jónas bóndi í
Kálfholti kom sjálfur með klárinn að sunnan og var honum
sleppt í 20 hryssur. Asi verður svo hjá okkur næstu 6
vikurnar og vonandi koma 20 folöld sem síðar meir verða
eins faxprúð og hann..... Smellið á myndirnar til að
sjá þær stærri.... Frábær prúðleiki á Asa.
18.06.2006

Maur fékk að fara í hryssur á Tyrfingsstöðum í dag. Það
var kátur lítill karl sem hljóp á eftir hryssuhópnum í
sólinni í Skagafirðinum. Maur verður með 7 hryssum í
tvo mánuði í sumar. Á Tyrfingsstöðum var síðan
tækifærið notað og sett ormalyf í hryssurnar og
folöldin, áður en þau fóru í hólfið.
17.06.2006

Fengum nýjan hest á búgarðinn, Börk frá Brúnastöðum, 3v.
rauðskjóttan. Börkur fékk líka nýjan eiganda í dag en
það var Auðunn Orri sem fékk hestinn að gjöf frá pabba
sínum. Börkur er þægur í umgengni, faxprúður og
gangmikill hestur. Börkur er undan Vini frá Tunguhálsi
I, sem aftur er undan Smára frá Skagaströnd.
17.06.2006

Sandra og Raggi urðu fyrir miklu áfalli í dag þegar
þau misstu keppnis- og kynbótahryssuna, Sigurrós frá
Kommu, úr hrossasótt.
16.06.2006

Tekið við hryssum undir Asa í dag. Hér er Magnús
"Miðsitjubóndi" Andrésson og Arnar að sleppa tveim
hryssum sem Magnús kom með undir klárinn.
14.06.2006

Heimsókn í Litlu-Brekku. Þar er Maur kominn á hús í
nokkra daga en hann er á leið í hryssur vestur í
Skagafjörð. Auðunn notaði tækifærið og knúsaði kisuna á
bænum. Kisa fannst greinilega fínt að kúldrast í
fanginu á Auðuni.
11.06.2006

Fædd er í dag, Fornöld frá Fornhaga II. Hún er undan
Hörku frá Akureyri (8,13) og Þorsta frá Garði (8,40).
Fornöld er sótrauð með litla stjörnu. Það var þungbúið
í rigningunni í dag, þegar þessi mynd var tekin, og því
þurfi að lýsa myndina til að sjá þessa litlu skvísu (hún
er sem sagt mun dekkri en myndirnar gefa til kynna).
Þær voru greinilega nýstaðnar á fætur þær mæðgur þegar
við hittum þær í dag í Fornhaga.
01.06.2006
Þeim heilsaðist vel mæðgininum Svölu og Farða þegar við
litum á þau í dag. Farði var sperrtur og flottur og
líkast því að hann væri margra daga gamall, þrátt fyrir
að fagna einungis einsdags afmælinu sínu! Farði er
myndarfoli og eru eigendurnir glaðir með kappann.
31.05.2006
Farði frá Fornhaga II fæddist í
morgun, brúnslettuskjóttur. Hann er undan Svölu frá
Hurðarbaki og Ægi frá Móbergi. Farði er albróðir Maska
frá Akureyri sem er líka slettuskjóttur.
Hér er svo Maski...
27.05.2006
Við erum komin upp úr snjónum! Á eftir vetri kemur
vor...nema hvað núna koma VETUR og svo beint í þetta
fína sumar. Girðingarvinna á fullu og þá kemur
Guðbergur sér vel!
23.05.2006

Stórhríð í
Fornhaga. Hryssurnar voru teknar á hús eftir
þriggja daga linnulausa stórhríð.
21.05.2006

Fló frá
Akureyri Harka frá
Akureyri Svala frá Hurðarbaki
Formlega komnar heim í Fornhaga II.
Fórum með hryssurnar okkar, Fló og Hörku, sem og Svölu
heim í Fornhaga II. Nú eru þær sem sagt formlega
fluttar í sveitina og eru því fyrstu ábúendur í Fornhaga
II til að flytja búferlum. Nú styttist í köstun hjá
þeim en veðurguðirnir hafa verið síður en svo hlýlegir
við búpening undanfarið og hefur gengið á með dimmum
éljum á Norðurlandi, slydda og snjókoma á víxl.
16.05.2006
Sjá nánar undir
Fornhagi
25.04.2006

Sjá nýja auglýsingu um Asa frá Kálfholti en hann verður
hjá okkur í fyrra gangmáli - í Fornhaga. Smellið á
auglýsinguna til að sjá hana í fullri stærð.
16.04.2006

Heimsóttum Ingu og Tona í Hof um páskana og fengum að
sjá hestakostinn hjá þeim. Að venju voru þau vel
ríðandi eins og myndirnar sýna. Hrossin eru Auður frá
Hofi, 5v. Hróðsdóttir (jörp), Spör frá Ytra-Skörðugili,
Kjarvalsdóttir (rauð 1v. hryssa) og Sókrates Hróðsson
6v. (rauðskjóttur).
16.04.2006

Maur heimsóttur í Bægisá, þar sem hann er í hagagöngu.
Myndarfoli og kemur til með að halda eistunum eitthvað
frameftir aldri.
14.04.2006

Það er gaman að renna sér í snjónum í Fornhaga. Auðunn
tók nokkrar syrpur á bæjarhólnum.
12.04.2006

Tekið til kostanna á Króknum verður dagana 20. - 23.
apríl n.k.
Sjá nánar hér.
25.02.2006
Kíktum til hrossanna okkar í Stóru-Brekku í sólinni.
Mikið sældarlíf á þeim þessa daga enda veðrið búið að
vera alger snilld. Hér má sjá myndir af nokkrum þeirra.
Doppa frá Tindum Hekla frá Ey Kolur
hausmynd Kolur standmynd Arnar með Traffík og
Efa.
25.02.2006

Fyrsta skóflustungan tekin í Fornhaga að nýju
íbúðarhúsi.
16.02.2006

Asi frá Kálfholti hefur verið auglýstur inniá
www.hryssa.is en hann
verður eins og áður hefur komið fram hjá okkur í
Fornhaga II í sumar, í fyrra gangmáli (sjá eldri fréttir
hér neðst á síðunni - FRÉTTIR 2005 -). Verð á tolli
undir Asa er 28.000,- + vsk. auk 5.000,- fyrir sónar og
hagagjald. Þegar er farið að taka við pöntunum undir
Asa og geta áhugasamir haft samband við Arnar í síma
893-1579 eða sent okkur póst.
29.01.2006

Doppa frá Tindum er komin í hagann til
okkar en Doppu eignuðumst við í des. 2005. Doppa er
hvít með svörtum slettum á... mjög sérstök á litinn.
29.01.2006

Rúbla frá Refsstöðum er farin í frekari tamningu og
þjálfun til Ólafs Magnússonar á Sveinsstöðum í
Húnavatnssýslu. Stefnt er með Rúblu í kynbótadóm í vor,
gangi allt upp. Rúbla sem er undan Hróðri frá
Refsstöðum hlaut dóm 4v. gömul sem var frekar slakur og
nú vonandi næst að hrista eitthvað upp í
hæfileikatölunum.
26.01.2006
Kálfholt hefur opnað nýja heimasíðu:
www.kalfholt.is og
eins og komið hefur fram á vefnum okkar hér fyrr þá
verður Asi frá Kálfholti í fyrra gangmáli hjá okkur í
Fornhaga II í sumar. Kíkið inn á heimasíðuna þeirra í
Kálfholti.
25.01.2006

Opna Bautamótið í tölti fer fram 18. febrúar n.k. í
Skautahöllinni á Akureyri. Smellið á myndina til að sjá
auglýsinguna í fullri stærð. |