Heim Fréttir Hross til sölu Hrossin okkar Fornhagi II Sauðfjárrækt Hallveigarstaðir Myndir Um okkur Framfari

Eldri Fréttir (2009)

26.12.2009

Það snjóar og snjóar! Hrossin standa í hagleysu í skafhríð og ofankomu.  Heyrúllan sem hryssurnar fengu á aðfangadag er horfin í snjóinn og hrossin standa bara á höm og bíða betra veðurs. Það hefur snjóað nánast linnulítið frá því á aðfangadag, einungis jeppafært um sveitina og eins jólalegt og hægt er að hugsa sér það.  Einhverjir ferðalangar hafa staðið strand hér neðan við bæinn en við höfum tekið alger fríjól og ekki farið af bæ.  Hér fyrir ofan má sjá Írenu Leiknisdóttur hlaupa um í snjónum sem náði henni alveg í kvið.  Hún reyndi þetta víðavangshlaup ekki meir og stóð algerlega uppgefin eftir sprettinn.  Nú er bara að vona að þessi afar jólalegi jólasnjór láti sig hverfa að mestu, svo að einhver hagi komi nú uppúr fyrir hrosssin.  Þessar myndir hér að ofan voru teknar í gegnum eldhúsgluggann umhádegisbilið í dag...þar sem myndavélin treysti sér ekki út í hríðina.

22.12.2009

20.12.2009

Kíkið á handverk á Hallveigarstöðum.

19.12.2009

Skyrgámur kom færandi hendi með "Essasú" boli handa Auðuni og Ævari.

06.12.2009

Af sauðfé og fólki er það að frétta að við erum með í láni stóran og mikinn hrút frá Garðshorni/Syðri-Bægisá, hreinhvítan, kollóttan og extra langan.  Hrútinn ætlum við að nota til að reyna að ná hreinhvítri gimbur í ásetning undan henni Brúðu okkar sem er hreinhvít, extra stór og löng :o)  Ef svo verður, þá verðum við með svona framhaldsfé...það verður svo langvaxið - he he.  Annars fór dagurinn hjá yngri deildinni í kassabílasmíði.  Loksins fengu hjólin af barnakerrunni okkar tilgang og gamalt sæti af skrifstofustólnum hans Arnars einnig.  Vel lukkaður vagn með beygjum og alles.  Þeir Auðunn og Ævar voru líka frekar glaðir með sig þegar þeir tóku prufuaksturinn á drossíunni. 

02.12.2009

Nú er vetur í bæ og Auðunn Orri notaði tækifærið og gróf sér snjóhús í skafl sem hafði myndast við skálann hjá okkur.  Þetta er eiginlega svona fyrsti alvöru vetrardagurinn hér á þessum vetri og fengum við allt í senn... mikla sjókomu, skafrenning, hálku og slæmt færi og í dagslok hlýnaði og fór að rigna í allt saman. Svona er nefnilega Ísland í dag.  Íris og Freyja fluttu að heiman í gær og við það tækifæri fengu þeir Efi og Hreimur aftur einkastíurnar sínar.  Fer að styttast í að folöldin verði tekin á hús og þá verður nú fjör á Læk!

29.11.2009

Þá er hún loksins komin á járn, Freyja frá Arnarvatni.  Þessi 6v. hryssa er undan Andvara frá Ey, frábærlega þæg og traust og hentar öllum í fjölskyldunni.  Henni þótti lítið um þó að Arnar reiddi heim á henni tóma plastfötu sem varð á vegi hans.  Í dag kom svo heim úr frumtamningu hún Fornöld okkar en hún hefur verið undanfarnar vikur hjá Birni Einarssyni á Hvanneyri.

28.11.2009

Hvítt og svart! Byrjuðum að gefa folaldshryssunum út fyrir viku síðan og í dag þegar veturinn herjaði á ferfætlingana var gott að geta glatt þá með heyrúllu.  Verði ljós...og það varð svo sannarlega í vikunni því í gær fengum við ljósastaura á heimreiðina hjá okkur og nú getum við sungið eins og skáldið "Ég sé ljósið!"  Það verður þó að segjast að geimverulúkkið (ennisljós á hverjum haus) var pínu skemmtilegt á meðan á því stóð.

22.11.2009

Það er fátt sem okkur dettur ekki í hug!  Þannig héldum við t.d. flóamarkað í Fornhaga II í dag og vorum fimm söluaðilar saman með markaðinn (Anna í Fornhaga II, Kolla á Úlfsstöðum í Skagafirði, Jónína á Akureyri, Sigga í Þríhyrningi og Helga í Þríhyrningi).  Það kom okkur verulega á óvart hvað komu margir og fullt af dóti eignaðist nýja eigendur...sem betur fer fyrir geymslurnar okkar hinna :o) Á annað hundrað manns kom við hjá okkur þennan markaðsdag og var það vonum framar.  Það voru því hálf þreyttar konur sem pökkuðu restinni saman að degi loknum (eins og sést á myndunum hér að ofan... he he) en smáfólkið brosti sínu breiðasta og skemmti sér konunglega allan tímann.  Áætlum að hafa annan svipaðan dag á nýju ári og þá með fullt af nýju dóti enda nóg til og sumt meira að segja gleymdist að hengja upp í öllum látunum.  Frábær dagur og skemmtilegur.  Takk þið öll sem kíktuð við :o)

21.11.2009

Sóttum stóðhestsefnið okkar hann Hreim (Hörku og Gígjars Auðsholtshjáleiguson) fram á Staðarbakka í dag en þar hafa ungfolar á vegum Framfara verið í hagagöngu.  Hreimur er stór og myndarlegur og afskaplega rólegur.  Hann er veturgamall, bandvanur og mikið mannvanur.  Hreimur var tekinn inn á hús í dag og fékk allar mögulegar tegundir af ormalyfi í tilefni dagsins.  Ærnar komnar á sinn stað, búið að svampa það sem við á og styttist í fengitímann.  Þær eru feitar og sællegar enda búnar að vera lamblausar síðan um miðjan september.

20.11.2009

Dagur jólaljósanna er í dag, 20.11. en þennan dag er t.d. kveikt á jólastjörnunum hjá Akureyrarbæ og síðan við bjuggum þar, er 20. nóv. okkar jólaljósaskreytingadagur.  Keyptum að því tilefni jólaljósatré til að hafa fyrir framan húsið og bláar seríur í gluggana.  Góð tilbreyting frá fyrra ári.

17.11.2009

Þessi hryssa er ný á bænum, Freyja frá Arnarvatni u. Andvara frá Ey.  Hún er 6v. gömul, frábærlega þæg og traust en góð sinna í henni og heldur vel áfram. Mjög gott fjölskylduhross, töltgeng með fallegan höfuðburð og ágætis fótaburð.  Næst allsstaðar og er á mjög margan hátt skemmtileg hryssa.  Arnar hoppaði aðeins á bak henni járnalausri og stendur til að járna hana í vikunni og taka nýjar myndir. 

16.11.2009

Það eru stanslausar breytingar í flotanum.  Þessar þrjár hryssur eru allar seldar.  Blíða frá Tyrfingsstöðum og Þjóðnýting frá Skriðulandi fóru í útflutning í dag og Íris frá Fornhaga II seldist einnig en hún er undan Blíðu og Drangi frá Hjallanesi.  Við eigum því ekkert folald eftir undan Drangi en þær tvær hryssur sem fæddust okkur undan honum eru seldar og tvær hryssur seldum við fylfullar við honum þannig að Drangslagerinn er tæmdur.

02.11.2009

Hvað haldið þið að þetta sé?  Þetta eru hestakögglar sem við framleiðum í eldhúsinu okkar hér í Fornhaga II.  Þannig er að Gola okkar, sem gengur verulega illa að ná heilsu, fóðrast illa og það gengur hægt að koma utan á hana holdum eftir öll þessi veikindi.  Hún er hinn mesti gikkur á hverskyns fóður en borðar svona þokkalega af heyi en vill ekki neina olíu eða fóður sem inniheldur slíkt. Því tókum við á það ráð að leggjast yfir það hvað við gætum gefið henni sem henni þætti bæði gott og myndi reynast henni góð orka.  Anna skellti sér því í eldhúsið og ákvað að gera tilraunir með heimagert hestafóður. Aðal uppistaðan í hestakögglunum er hveitiklíði og heilhveiti.  Úr deiginu mótum við stangir sem við bökum létt í ofninum og brytjum svo í kubba á stærð við sykurmola.  Kubbarnir eru þéttir í sér, seigir og bragðmiklir.  Þetta þykir Golu mikið mesta lostæti (en hennir þykir reyndar fátt lostæti þessar vikurnar) og fær nú til að byrja með 200 gr. af þessum kögglum á dag.  Svo er að sjá hvort við uppskerum eitthvert kjöt á beinin í orðsins fyllstu merkingu. 

01.11.2009

Þarna er búið að ná einu folaldi úr ullinni :o)  Þetta er Íris, móbrúnskjótt, blesótt,  undan Blíðu frá Tyrfingsstöðum og Drangi frá Hjallanesi.  Íris var tekin undan móður sinni í gær en Blíða er að fara í útflutning um miðjan nóv og því þarf hún sinn tíma til að geldast. Írisi tókum við glóðvolga og rökuðum hana enda verður hún á húsi fram á vor. Hún var frábærlega þæg við okkur og skriðum við í kringum hana á meðan á rakstrinum stóð, án nokkurra vandkvæða. Takið eftir hvítu röndinni sem er á neðanverðum hausnum (sjá mynd í miðju). Blesan á henni nær sem sagt frá enni og undir haus.  Skemmtilega öðruvísi.

Sjáið hvaða hryssur fóru undir hvaða hesta, sumarið 2009.  Fyljunarskýrsla 2009.

26.10.2009
Byrjum daginn á að bjóða Vidda og Ollu á Björgum velkomin í netheima.  Kíkið á heimsíðuna þeirra á slóðinni www.bjorg1.is

Ævar Ottó & Sólroði
frá Syðri-Reykjum
Ísöld f. 2009
Tenórs og Flóardóttir
Íris f. 2009
Blíðu og Drangsdóttir
Íris og Brynja frá Árbæ

Fyrsti vetrardagur liðinn. Hrossin eru líka orðin mjög vetrarleg, eins og myndirnar hér að ofan sýna. Það er rólegt í hestamennskunni þessa dagana enda hefur allt púður verið lagt í framkvæmdir utanhúss (sjá myndir).  Sigmar Bragason, bóndi á Björgum, hefur staðið í ströngu hér undanfarið við framkvæmdir.  Nú er svo bara að bíða vorsins til þökulagninga og frekari lagfæringa.

18.10.2009

Dagur mikilla verka í dag! Girtum nýtt hausthólf handa folaldshryssunum, rákum þær inn og gáfum þeim ormalyf ásamt folöldum.  Gáfum bandormalyf auk þess venjulega (folöldunum) og var því þónokkur tamning fyrir ungviðið að ganga í gegnum tvöfalda ormalyfsgjöf. Á fyrri myndunum tveim er Arnar með Brynju sætu frá Árbæ. Glæsileg hryssa hún Brynja og algjört augnakonfekt. Á seinni myndunum tveim er Arnar svo aftur með Ívar frá Fornhaga II eftir ormalyfsgjöfina.  Þeir svitnuðu báðir við verkið :o) En allt fór þetta nú vel og þá má veturinn mæta :o) Sú rauðblesótta, faxprúða, er Blíða frá Tyrfingsstöðum 4v. sem hefur verið seld til DE og fer utan í nóvember.

14.10.2009

Það gengur ekki alltaf sem skyldi í þessari blessaðri hrossarækt.  Gola okkar hefur aldeilis þurft að hafa fyrir lífinu undanfarnar vikur og stendur nú heima í húsi í gifsi.  Hennar sjúkrasaga byrjaði með slæmu sári á framfæti sem þurfti að sauma. Sárið greri ekki og eftir langa og stranga lyfjagjöf fór meltingin úr skorðum. Þetta varð henni nánast að aldurtila og nú, 2 mán. eftir þetta slys, snýst allt um að koma henni aftur til "lífs".  Hún er á sér fæði, þarf að standa í hitablæstri til að halda á sér hita og Arnar smíðaði svo handa henni risa sjúkrastíu svo að hún gæti látið sér líða eins vel og hægt er í aðstæðum sem þessum.  Gifsið styður svo við fótinn sem er mun verr farinn en talið var í upphafi og kvíslbönd og annað þvíumlíkt mikið tjónað.  Það hefur því reynt á okkur að standa í þessu stappi með henni, blessaðri.  Nú er bara að vona til Guðs að hún nái sér upp en við erum við öllu búin enda búið að ganga verulega upp og ofan í þessu.  Koma svo - Gola!  :o)


Það eru líka glaðir tímar, þrátt fyrir erfiðleika og veikindi Golu, en í dag komu á hús þau Efi (4v.) og Fornöld (3v.).  Þau eru bæði nánast ótamin, eitthvað búið að fortemja þau og þeirra bíður því vetrarvinnan í öllu sínu veldi.  Þau eru bæði mjög traust og áreiðanleg í alla staði, eins og við var svosem að búast. Þau eru undan þeim systrum, Hörku og Fló þ.e. Fornöld, sú rauða, er undan Hörku og Þorsta frá Garði en Efi, sá jarpi, er undan Fló og Lofti frá Möðrufelli. Það er því hálf þunnur þrettándinn í tryppahópnum þennan veturinn, aðeins ein hryssa á fjórða að koma í tamningu.  Svona er þetta bara stundum.

11.10.2009

Það var dásamleg haustblíða í dag og við það tækifæri voru tryppin og reiðhrossin tekin í gegn.  Dregið undan, gefið ormalyf, hófar klipptir og öllu svo komið í kafloðinn hausthagann.  Hrossin stóðu langt upp á síður í háu grasinu og kunnu vel að meta að undir sölnuðum puntinum mátti finna iðagrænt grasið vel varðveitt.  Lykt af reyr og hvönnum lá í röku loftinu, betra getur það vart orðið.  Á næstu dögum fá stóðhryssurnar, og folöldin sem undir þeim ganga, sama atlæti.

07.10.2009
Haustið er jafnan góður tími í hrossasölu og þrátt fyrir hið fræga "árferði" hefur verið mjög glatt hjá okkur í sölu. Þurfum því að fylla á lagerinn :o) Leitum eftir hrossum til kaups, tömdum sem og ótömdum, sendið okkur endilega uppl. og myndir á netfangið fornhagi@fornhagi.is ef þið hafið e-ð skemmtilegt til sölu. Okkur sárvantar ennþá gelding eða hryssu sem hefur gott útlit, meðalhross að stærð eða stærra, efni í keppnishross (eða kynbótahryssu). Verður að vera með fax í ríflegu meðallagi. Einnig vantar okkur mjög þæg hross (barnahross). Nánari uppl. gefur Arnar í síma 893-1579

30.09.2009
Loksins komin inn hjá okkur aftur söluhross.  Kíkið á Ívar undir hross til sölu.

23.09.2009

Þessir tveir "hausar" eru nýir hjá okkur.  Þetta eru þeir Niður frá Lækjamóti sem er japur og 4v. gamall, og Smári frá Súluholti sem er 10v. rauðstjörnóttur.  Þessir hestar eru báðir þægir og traustir þó að vissulega eigi sá jarpi nú eftir að sanna gildi sitt sem slíkur.  Smári er hins vegar þægur og auðveldur hestur fyrir smáa knapa og byrjendur.  Smári er til sölu og við setjum fleiri myndir inn af honum síðar. Verð á honum er 150 þús. og þeir sem hafa áhuga geta haft samb. við Arnar í síma 893-1579


Auðunn Orri er mikill áhugamaður um vélknúin farartæki.  Auðunn sem nú er 10 ára gamall var að eignast sitt fjórða vélhjól á dögunum sem er krossari, Kawasaki 110cc. en áður átti hann SkyTeam 125cc krossara, þar áður TaoTao 110cc fjórhjól og enn þar áður lítið rautt 50cc fjórhjól.  Þetta Kawasakihjól hefur algjörlega slegið í gegn og hafa nokkrir vinir Auðuns komið í heimsókn og fengið að prufa hjólið hjá honum. Á einni myndinni er Auðunn að hjóla með Óla vini sínum, sem býr á Akureyri.  Þeir félagar notuðu gangnadaginn til torfæruaksturs á meðan mæður þeirra gengu til fjalla og sóttu "lausafé".

22.09.2009

Kíkið á sauðfjárræktarsíðuna okkar og sjáið frábæran árangur hjá Arnari í sauðfjárræktinni.  Hann lét nefnilega dæma hina svörtu Dimmu Lambásdóttur í dag, og hlaut hún m.a. 19,0 fyrir læri :o)  Algjör snilld!

15.09.2009

Þarna er Arnar á þeim Sólroða frá Syðri-Reykjum (sá rauði) og Júlíu frá Syðri-Sandhólum (þeirri jörpu).

Sólroði er stór, gríðarlega fallegur, faxprúður, þægur og gæfur.  Hann er 5v. gamall og svona rúmlega reiðfær. Alhliða hestur sem hefur ekki náð jafnvægi á gangi. Mjög efnilegur fjölskylduhestur, traustur.
Sólroði er undan Bjargþóri frá Blesastöðum (ae. 8,30) og hann er sammæðra alsystkinunum Stirni frá Efri-Þverá (8,15) og Stjörnudís frá Efri-Þverá (7,93).

Júlía er 7v. alhliðahryssa, vel töltgeng með fínan fótaburð. Hún fer vel með, mjög þæg og traust en ekki gæf.  Hún er sem sagt mjög gott fjölskylduhross, vel ættuð en hefur þennan annmarka að nást ekki auðveldlega hvar sem er.  Júlía er undan Þokka frá Árgerði (8,06) og Hind frá Syðri-Sandhólum ( 7,64) MF. Baldur frá Bakka). Það stendur að henni mikið tölt en Þokki er með 9,0 fyrir tölt og Hind með 8,5 og bæði lyfta þau vel.

11.09.2009
Erró er á leið úr landi á næstu dögum.
Það er búið að vera líflegt í hrossasölu hjá okkur og því tímabært að fylla á lagerinn.  Keyptum þrjú ný hross í dag, öll mjög þæg, svo nú er bara að rífa sig á bak og prufa.  Setjum myndir af þeim þegar viðrar til myndatöku :o)

09.09.2009

Þær eru sniðugar þessar tvær skvísur, Brynja og Traffík.  Í hólfinu þeirra er skurður sem er mjög djúpur en í botninum möl og vatnið grunnt.  Eldri hryssurnar treysta sér ekki þarna niður en þessar yngri og flinkari voru fljótar að átta sig á að þarna kæmust þær í gómsæt strá sem engin hafði lagt í að kíkja á fyrr. Þær nutu í senn veðurblíðunnar, fótabaðsins og fjölbreytts hlaðborðs að hætti náttúrunnar sem saman stóð af allslags vatnaplöntum og grastegundum.  Brynja er fengin við Kvisti frá Skagaströnd en enn er óvíst með Traffík, þar sem hún hefur ekki verði sónuð, hvort í henni sé Þorra frá Þúfu fyl eða ekki.

08.09.2009

Hún Ísöld okkar, undan Tenór frá Túnsbergi, er hreint með ólíkindum gæf.  Þarna eru þeir Auðunn og Ævar að spjalla við hana og varla voru þeir búnir að líta af henni þegar hún bankaði í bakið á þeim og vildi meiri athygli. Þeir mega hreinlega gera allt við hana.  Verulega sérstök og mikið ólíkinda hross.

07.09.2009

Það er að mörgu að hyggja fyrir göngur og þarna höfðu blessaðar skjáturnar fundið sér leið undir annars fínu girðinguna okkar.  Þá var ekkert annað í stöðunni en að hefta þeirra för og réðist karlpeningurinn á bænum í að loka þessari "hjáleið".  Veðrið um helgina var alveg dásamlegt og heyjuðum við síðustu stráin þessa daga.

Þarna eru þær Íris frá Fornhaga II og mamma hennar, Blíða frá Tyrfingsstöðum.  Blíða hefur verið seld utan, fengin við Aðli frá Nýja-Bæ og fer hún út á haustmánuðum, þegar hennar mjólkurhlutverki er lokið.  Íris verður eftir heima í Fornhaga II ;o)

03.09.2009

Ævar Ottó 3 ára, brá sér á bak á Golu í kvöld en Gola er í sjúkrameðferð heima, með óhræsis gat á annarri framlöppinni sem hefur gengið illa að fá til að gróa.  Sárið var á sínum tíma saumað og gert að því þannig, en ekki dugði það til og hún nagaði sárið opið svo að saumarnir stóðu í allar áttir.  Nú lítur allt betur út með hana en fyrri partur þessarar raunarsjúkrasögu fór fram innandyra, þar sem hún mátti dúsa dögum saman.  Ekki náðist neinn bati í sárið, kom í það ofholdgun og mikil bólga.  Elfa Ágústdóttir dýralæknir tók hana þá og brenndi niður ofholdgunina og hreinsaði sárið upp.  Fornhagabúar fóru svo heim með viku skammt af umbúðum og ráðleggingum um framhaldið.  Núna eru nýjar umbúðir hvern dag, útivera og eðlileg hreyfing og þá gengur þetta allt hið besta.  Gola er alveg yndisleg sál og Ævar treystir henni algjörlega eins og nýju neti.  Enda lét hann húkka úr henni taumnum, sat á henni og spjallaði við hana án nokkurra stjórntækja.  Hann á núna í panti hestfolald undan henni - sem auðvitað á að verða hans framtíðarreiðhross.  Og þá er bara fyrir Ævar að bíða :o)

21.08.2009

Brynja frá Árbæ
Kn. Erlingur Erlingsson
Íma frá Akureyri
Kn. Þorbjörn Hr. Matthíasson
Maur frá Fornhaga II
Kn. Ragnar Stefánsson

Jæja, það var mikill kynbótadagur í dag á Fornhagabúinu en þrjú hross frá okkur fóru í kynbótadóm.
Brynja frá Árbæ var sýnd á Hellu og lækkaði úr 8,14 í 8,11.  Hún á því sinn hæsta dóm frá í fyrra, þá 4v. gömul. Íma frá Akureyri, Hágangsdóttir, ræktuð af Auðuni Orra, fór í 8,07 í aðaleinkunn en hún er í eigu Óla G. Jóhanssonar listamanns.  Til hamingju Óli :o)  Þá var sýndur Maur frá Fornhaga II, Rökkva og Flóarsonur.  Maur hlaut í aðaleinkunn 7,98 og hlaut m.a. 8,5 fyrir skeið.  Maur er í eigu Malin Larsson í Svíþjóð. Til hamingju Malin :o)  Það má því segja að þetta hafi farið nokkuð vel þó svo að auðvitað séu það veruleg vonbrigði hvernig þetta ár hjá Brynju hefur farið en hún er fengin við Kvisti frá Skagaströnd og hennar bíður því næst það verkefni að geta af sér folöld.  Knapar á hrossunum í dómi eru þeir sem getið er hér að ofan, við myndirnar.

18.08.2009

Þarna er hún komin heim kerlingin okkar hún Gola frá Stakkhamri, 12v. sótrauð.  Gola var hjá Birni Einarssyni á Hvanneyri en hann sýndi hana fyrir okkur í dómi á dögunum og hlaut hún B. 8,00 H. 7,82 Ae. 7,89.  Gola er undan Gusti frá Hóli (8,57) og Pílu frá Stakkhamri (8,02). 
Anna og Sól frá Litla-Dunhaga sumar 2008
Í dag fór svo heim til sín hún Sól frá Litla-Dunhaga, Andvaradóttir.  Sól hefur verið hjá okkur sl. tvö sumur, var hér fyrra sumarið í tamingu og þjálfun og nú í sumar meira svona okkur til skemmtunar.  Eigandi hennar, Jósavin bóndi í Litla-Dunhaga, kom í dag og fór á henni prufureiðtúr sem var virkilega vel lukkaður.  Ég held að hann hafi bara verið verulega glaður með sitt þegar hann fór með "Litlu-Rauðku" heim enda frábært reiðhross, taumlétt, viljug og fljúgandi geng.

15.08.2009
Faxprúður og tignarlegur Þorri :o)
Í byrjun ágúst sónuðum við frá höfðingjanum Þorra frá Þúfu (fyrri sónar) og eftir tæpar 6 vikur var staðfest fyl í ellefu hryssum af fimmtán.  Færðum hestinn og hryssurnar þá í nýtt hólf sem er góð tilbreyting fyrir hrossin eftir svo langan tíma. Þorri verður áfram hjá okkur hér í Fornhaga II í ágúst og með honum þær fjórar hryssur sem ekki var hægt að staðfesta fyl í.  Hann er búin að vera mikill gleðigjafi þann tíma sem hann hefur verið hjá okkur enda einstaklega ljúfur og gaman að heilsa upp á karlinn í hólfinu.  Hann hefur haft það mjög náðugt og gott hér fyrir norðan, mikill friður hefur ríkt í hólfinu hans og allt gengið eins og best verður á kosið.  Hann fer því feitur og sællegur inn í veturinn.

15.08.2009

Þessi unglingamynd var tekin í vor þegar þessar þrjár veturgömlu hryssur voru settar í stóðið, eftir að hafa verið á húsi í vetur.  Þetta eru þær Hespa frá Brúnastöðum (ljósaskjótt, blesótt), Hnota frá Fornhaga II (brúnstjörnótt, hringeygð) og Hildur frá Fornhaga II (rauðglófext,stjörnótt). Hildur er undan Álfadísi okkar Orradóttur. Hnota hefur verið seld úr landi og fer með haustinu en hinar tvær eigum við. Það sem er gaman við þessar hryssur er að þær eru allar óvenju faxprúðar og á myndinni eru þær ekki orðnar ársgamlar en samt með fax út um allt :o) Hespa fékk svo eina svona passamynd af sér einni og ein mynd af Hildi, nýrakaðri, frá í des 2008.

14.08.2009
Gola frá Stakkhamri og Björn Einarsson. Mynd: Sandra Marin.
Gola okkar fór í kynbótadóm í vikunni og hlaut í aðaleinkunn 7,89. Gola er undan Gusti frá Hóli og fyrstuverðlaunahryssunni Pílu frá Stakkhamri. Gola hlaut 8,0 fyrir byggingu og 7,82 fyrir hæfileika. Hún hlaut eina níu, fyrir fótagerð.  Gola er því komin með ásættanlegan dóm til að verða ræktunarhryssa hjá okkur. Kíkið á síðuna hennar Golu.

13.08.2009

Jæja, loksins lifnaði heimasíðan aftur við.  Eftir sumarfrí og annríki sem því fylgir að byrja aftur í vinnunni erum við komin á stað á netinu aftur.  Svona frekar en ekki keyptum við tvo hesta í fríinu og hér eru þeir mættir í Fornhaga II.  Á fyrri myndinni heldur Arnar í þá Sóma frá Syðstu-Fossum, sem er 8v. Oturssonur og með þeim á myndinni er líka Erró frá Syðri-Sýrlæk, sem er 7v. gráskjóttur, viljugur töltari með góðan fótaburð. Sómi er frekar lítið riðinn hestur miðað við aldur og er svona óræð stærð í hestamennskunni hjá okkur. Á seinni myndinni er Arnar kominn á bak myndarhestinum Erró.

02.07.2009

Nýjar myndir af Álfssyninum okkar :o)
Þetta er hann Tári frá Hvanneyri u. Álfi frá Selfossi og Tíbrá frá Hvanneyri (sjá frétt hér aðeins neðar). Við skruppum sem sagt á Hvanneyri til að mynda kappann og þarna er hann, grannbyggður og glæsilegur. Það fór óneytanlega um mann gleðihrollur þegar við sáum hann svona rígmontinn og flottan á litinn. Það er strax búið að gera ráðstafanir að halda einhverjum af hryssum búsins undir þennan fola eftir tvö ár! Sem segir það að væntingarnar eru miklar og efniviðurinn frábær.

25.05.2006

Hún Stör okkar frá Jaðri, Leiknis Vakursstaðadóttir, fór í tamningu til Ella og Viðju í Langholti þann 17.júní sl. Léttleikandi smart hryssa með mikinn fótaburð, hún Stör.

24.06.2009
Sigurður Óli og Lind frá Erpsstöðum árið 2004.
Lind frá Erpsstöðum (8,06) fór undir Dyn frá Hvammi (8,47) í gær.  Hryssuna leigðum við ásamt þeim Vigni og Jónínu í Litlu-Brekku og skelltum henni undir hinn faxprúða Dyn og fáum vonandi gullfallegt tryppi undan þeim en Lind er með 8,33 fyrir sköpulag og þar af 9,0 fyrir háls og herðar og fyrir hófa. Dynur er svo með 8,32 fyrir sína byggingu þannig að þessi sköpulagsblanda hlýtur heppnast.  Myndin er fengin af heimasíðu hrossabænda á Eiðisvatni, þeirra Ásu og Sigurðar, sem leigðu okkur hryssuna.

23.06.2009

Álfssonur fæddur, stór og myndarlegur :o) - Þá er síðasta folaldið okkar þetta sumarið fætt.  Það er rauðskjóttur, blesóttur hestur undan Álfi frá Selfossi (8,46) og Tíbrá frá Hvanneyri (8,10). Sá litli hefur ekki enn hlotið nafn en þessi hestur er sameignar og samstarfsverkefni okkar við þau mætu hjón Björn H.  Einarsson og Ástríði Guðmundsdóttur á Hvanneyri www.hestanet.is   Hann var glænýr og rennandi blautur þessi litli kroppur þegar þessar myndir voru teknar.  Það er ætlunin að fara um helgina og skjóta á hann myndum en sá stutti á lögheimili á Hvanneyri og því verður litla fjölskyldan í Fornhaga að leggja land undir hjól til að berja gripinn augum.

22.06.2009

Enn ein hryssan! Þetta er alveg makalaust skemmtilegt að fá svona margar hryssur.  Þessi fallega skjótta hryssa er undan títtnefndum Drangi frá Hjallanesi (sjá hér aðeins neðar) og hryssunni Blíðu frá Tyrfingsstöðum (4v.).  Drangur er brjúnskjóttur, Blíða er rauðblesótt, hringeygð og leistótt og hún er svo aftur undan Maska frá Akureyri sem er slettuskjóttur.

21.06.2009

Þorri fór í 15 hryssur í hólfi í Fornhaga II í dag. Hann er vel í holdum þessi svarti, tvítugi höfðingi og prúðleikinn hreint með ólíkindum. Það verður því dökkt yfir því að ári þegar Þorrabörnin fara að pompa á grundir Fornhaga II.

18.06.2009

Jæja...það stytti upp og þarna er hann kominn, IS2009165-881 Ívar frá Fornhaga II.  Móðir Harka frá Akureyri (8,13) og faðir er Glymur frá Innri-Skeljabrekku (8,38). Óskin að fá hryssu fjaraði alveg út þegar við litum augum þennan gullfallega, grannbyggða hest. Liturinn er líklega brúnn en e-ð er það að trufla okkur hve ljós hann er allur á undirvagninum svo að þangað til annað kemur í ljós þá er hann (bara)brúnn. Ívar fæddist á þjóðhátíðardaginn og síðan þá hefur rignt, þar til rétt í þessu, og því engar myndir fyrr en nú. Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri - hasarkroppur hann Ívar :o)

17.06.2009

Í kvöld mætti svo á Fornhagabúið, heiðursverðlaunahesturinn Þorri frá Þúfu.  Þorri fer í hryssur í
Fornhaga II um helgina og eru enn nokkur laus pláss undir hann ef vill en gjaldið á Þorra er 49.000,- m. vsk., hagagjaldi og einni sónarskoðun. Áhugasamir hafi samb. við Arnar í síma 893-1579 eða í netfang fornhagi@fornhagi.is  Þorri er faxprúður með eindæmum, með háar og miklar herðar og mikill höfðingssvipur á karlinum enda orðinn 20v. gamall.

P.s. Harka okkar kastaði í morgun hestfolaldi undan Glym frá Innri-Skeljabrekku. Sökum endalausrar rigningar var ekki hægt að mynda þau mæðgin en sjáum til með nýjum degi.

16.06.2009

Þær eru alveg hreint yndislegar systurnar Fló og Harka.  Þarna er Ævar Ottó að knúsa þær en þegar þetta er skrifað, að kvöldi 16. júní, er Harka rétt óköstuð. Það breytti engu þó önnur væri komin að köstun og hin mjólkaði folaldinu sínu, þær leyfðu Ævari samt sem áður að skoða sig í bak og fyrir. Þessa mjög svo traustu lund er gaman að rækta, svo mikið er víst.

14.06.2009

Brynja á kynbótasýningu í júní 2009 - knapi Erlingur Erlingsson.
Leiknis og Bringudóttirin okkar hún Brynja frá Árbæ, sem við eigum helming í á móti Vigni og Jónínu í Litlu-Brekku, fór í kynbótadóm í vikunni. Brynja lækkaði aðeins fyrir hæfileika, hlaut 8,11 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,13 en í fyrra hlaut hún 8,14 í aðaleinkunn. Hún hækkaði úr 8,08 fyrir byggingu í 8,16 þannig að tölurnar voru e-ð að rokka til. Sýnandi var Erlingur Erlingsson og er dómurinn eftirfarandi:
B: 7,5-8,5-8,5-8,0-8,0-8,5-8,0-8,0 = 8,16
H: 8,5-8,5-6,5-8,0-8,5-8,5 = 8,11
Aðaleinkunn: 8,13
Brynja fer svo aftur í dóm síðsumars en henni hefur nú verið haldið undir Kvist frá Skagaströnd (8,58) og verður það folald sameign eins og Brynja.
Erlingur Erlingsson og Kvistur frá Skagaströnd á LM2008

13.06.2009

Álfadís Orradóttir fór í dag undir Maur frá Fornhaga II (5v. Rökkvason).  Maur er líklega á leið úr landi og þar sem við eigum enga hryssu undan honum ákváðum við að freista þess að láta Álfadísi færa okkur hana en hún hefur verið gjafmild á kvennkynið og af tíu afkvæmum hennar eru átta hryssur.  Það er skemmtilegt. Álfadís var að byrja í látum í dag þegar hún fór undir hestinn og fékk því afgreiðslu á fyrstu mínútum þessa stefnumóts.

13.06.2009

Maður fær einhvernveginn aldrei leið á því að skoða þessi litlu, nýfæddu folöld. Væntingarnar eru líka miklar og loftkastalarnir byggðir hver á fætur öðrum. Ísöld Tenórsdóttir, sú svartfædda (steingráa), er orðin mun fríðari en okkur fannst hún í fyrstu.  Hún er með miklar og háar herðar og öfluga lend. Hún er alveg fljúgandi geng og fer mikinn á skeiði og tölti. Írena Leiknisdóttir, sú rauðblesótta, kom okkur á óvart í dag þegar við sáum að hún er líka með leist á öðrum afturfæti. Svona er erfitt að átta sig á þessu á rauðum hrossum, þegar fæturnir eru mjög ljósir við fæðingu og ekki gott að sjá greinileg litaskil á þeim. Írena er mjög léttbyggð, mikill fótaburður og spólar um allt á tölti. Hjartað tekur alveg aukaslag þegar réttu kyni og lit fylgir mikil ganghæfni og tala nú ekki um fótaburður.  Tja, vorið 2013 verður vonandi e-ð að frétta af þessum tveim efnis hryssum :o)

11.06.2009

Fjórða folaldið okkar er hryssa undan Tenór frá Túnsbergi, nýkrýndum heimsmeistara stóðhesta fyrir hæsta hæfileika eða 9,15 :o) og undan henni Fló okkar. Það var nú ekki lítill spenningur yfir þessu folaldi og auðvitað var óskin að fá hryssu og pínu bónus ef hún yrði nú dökkgrá eins og pabbi sinn.  Sú stutta er fædd svört, verður grá og vonandi verður hún dökk mjög lengi eins og pabbi hennar virðist ætla að vera. Hún var ekki búin að standa á jörðinni nema í nokkra klukkutíma þegar hún hlaut nafnið Ísöld frá Fornhaga II og er með skráningarnúmer IS2009265-880. Ísöld er gangmikil og fer um á skeiði og tölti. Myndirnar voru teknar af henni í dag, þá 16 klst gamalli í rigningarsudda...svo að vonandi náum við fljótlega "hlýjum" og sperrtum myndum af henni. Meistari Tenór er svo á myndinni lengst til hægri.

Staðan þegar þrjár hryssur eru ókastaðar er:  Fjórar hryssur af fjórum folöldum :o)
Enn eigum við svo eftir að fá folöld undan Álfi frá Selfossi, Glym frá Innri-Skeljabrekku og eitt undan Drangi frá Hjallanesi I.

10.06.2009

Enn fæðast hjá okkur hryssur og þriðja folaldið sem er fætt okkur þetta vorið er hryssa og heitir hún Írena frá Fornhaga II, en hún fæddist í dag.  Írena er rauðblesótt m.leist á vinstri afturfæti, undan Leikni frá Vakurstöðum og Álfadísi Orradóttur frá Ásmundarstöðum. Írena er fíngerð og fríð hryssa og eins og áður hefur komið fram hér á síðunni undan einum af okkar uppáhaldshesti, Leikni frá Vakurstöðum.

29.05.2009

Þarna er hún fædd, Ísafold frá Fornhaga II IS2009265-888 undan Drang frá Hjallanesi I og Rauðhettu frá Haga (sjá myndir hér fyrir neðan). Drangur var hjá okkur hér í Fornhaga sl. sumar og hryssuna fengum við að láni hjá Þór og Siggu í Skriðu. Liturinn frábær, brúnskjótt hryssa með afar sérstakar slettur um allan kropp og er svona eins og sá sem "litaði" hana hafi gleymt að þekja allt svæðið því á henni eru 6 örlitlar hvítar slettur.  Skemmtilegt að fá hryssu með þessum flotta lit og foreldrarnir báðir vel faxprúðir, þá sérstaklega Rauðhetta sem er með fax niður á framfætur. Ísafold fer um á tölti, er fríð og fínleg og er eigendum sínum mikill gleðigjafi.
Drangur frá Hjallanesi I u. Roða frá Múla. Rauðhetta frá Haga 23v.

29.05.2009

Sumarið er á næsta leiti með öllu sínu.  Þarna flaug gæs upp af hreiðri sínu.  Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri en þessi fallegi fugl er ótrúlega tignarlegur þar sem hún sveif rólega yfir á bakkann á móti á meðan ljósmyndarinn stal mynd af hreiðrinu með 6 eggjum í.

28.05.2009

Stóðhestur búsins hjá okkur í sumar verður heiðursverðlaunahesturinn Þorri frá Þúfu og kemur hann til okkar í fyrra gangmál, þ.e. frá 20 .júní. Nokkur pláss eru laus undir Þorra og geta áhugasamir haft samband við Arnar í síma 893-1579 eða í netfang fornhagi@fornhagi.is  Verð á tolli er 49.000,- m. vsk. hólfagjaldi og einni sónarskoðun.

28.05.2009

T.v. Fló með Gloríu u. Asa frá Kálfholti (f.2007) og t.h. Erlingur Erlingsson og Tenór frá Túnsbergi á LM2008
Það var ólýsanlega gaman að sjá í gær að Tenór frá Túnsbergi hækkað í 9,03 fyrir hæfileika í kynbótadómi. Tenór var okkar hestur hjá Framfara sl. sumar og héldum við einni hryssu undir hann, henni Fló. Fló er stór, grannbyggð með góðan háls og hefur gefið okkur mjög stór og falleg hross. Fló á að kasta eftir 1-2 vikur og er spenningurinn enn meiri eftir þennan háa dóm Tenórs.  Tenór fer svo í yfirlitssýningu á laugardaginn kemur og því á eftir að koma í ljós hvort þessi dómur sé endanlegur eður ei. Til hamingju Gunnar og Magga í Túnsbergi með Tenór :o) 30.05. hækkaði Tenór svo í 9,5 fyrir tölt og hlaut fyrir hæfileika 9,15 og í aðaleinkunn 8,61. Þar með er hann hæst dæmdi stóðhestur í heimi fyrir hæfileika.  Algjörlega magnað!

26.05.2009

Börkur hinn fagri fór í tamningu um helgina til Atla, bróður Arnars, inn á Akureyri.  Börkur er af sérstöku "góðhestakyni" frá Brúnastöðum í Skagafirði en systkini hans (sammæðra) hafa flest öll reynst afar vel sem mjög þæg fjölskylduhross og hafa einnig góðan lit og glæsilegt útlit. Börkur er hins vegar of lítið taminn miðað við aldur en hann er 6v. og svona að verða reiðfær ;o) Stendur þó allt til bóta. Stórglæsilegur hestur, stór, bolléttur og lofthár.

25.05.2009

Það var kveðjustund hjá þeim Ísaki frá Barkarstöðum og Ævari Ottó (3 ára) í gær en þá fór Ísak aftur til Hrafnhildar sinnar í Borgarnesi. Þessi hvíti höfðingi hefur átt hug og hjarta Ævars nánast frá því að hann kom til okkar enda einstakur ljúflingur og yndislegur við svona litla hestamenn, hann Ísak.

21.05.2009
Elísa Eir og Sómi hans Auðuns Orra.
Gömlu klárarnir Sómi frá Frostastöðum 10v. og Blær frá Borgarhóli 16v. voru járnaðir í dag. Einnig járnuðum við hana Sól frá Litla-Dunhaga, Andvaradóttur, en sú hryssa var hjá okkur sl. sumar og kom svo aftur um síðast liðna helgi.  Elísa Eir var hjá okkur í gær og dag og nýtti tækifærið og skellti sér á bak á Sóma áður en hann var járnaður. Við hjónaleysin tókum svo skeifnasprettinn á gömlu klárunum um miðnættið og það er alltaf ákveðið notalegt að ríða á svona jöxlum sem skeyta hvorki um stund né stað.

20.05.2009

Það er fátt skemmtilegra en að sjá hrossin hreyfa sig fallega, ýmisst undir hnakknum eða laus í haganum. Þetta er hún Stör okkar frá Jaðri 4v. gömul.  Stör er undan Leikni frá Vakurstöðum og er alveg bráðefnileg fótaburðarhryssa. Stör hefur einnig það við sig að vera afar heilsteypt í lundinni og skemmtileg í öllu viðmóti. Gríðarlega spennandi hryssa hún Stör.

19.05.2009

Ja nú er það rautt maður lifandi! Það er svo merkilegt með það að hjá okkur fæðast alltaf meira og minna rauð hross eða þá að við eignumst þau. Þarna eru ein 6 í röð, rauð eða rauðskjótt og að vísu í sárabót eru þetta allt hryssur nema hann Muggur sem er lengstur til hægri. Þessi hross eru sem sagt talið frá vinstri: Eining 2v. rauðhalastjörnótt (ekki í okkar eigu), þá Gloría rauðglófextstjörnótt 2v. undan Fló og Asa frá Kálfholti, Fornöld sótrauð 3v. undan Hörku og Þorsta frá Garði, Hulda rauðskjótt 3v. undan Tenór frá Tunguhlíð, Grafík rauð 2v. undan Hörku og Asa frá Kálfholti og loks Muggur rauðblesótturglófextur 2v. undan Maur frá Fornhaga II.

17.05.2009

Jæja, loksins komu fyrstu folöldin í heiminn á búinu þetta vorið. Það var þá heldur ekki hvellurinn þegar þær köstuðu sömu nóttina Lipurtá frá Syðri-Ingveldarstöðum (sú rauðmjóblesótta) og Svala frá Hurðarbaki (sú brúnblesótta). Svala hefur reyndar haft þann heiður að kasta alltaf fyrst á hverju vori. Þetta vorið þurfti hún að láta í minni pokann fyrir Lipurtá og var sárlega móðguð, enda kastaði hún fjórum tímum á eftir hinni og hefur ekki ætlað að gefa neitt eftir í að eiga "fyrsta" folaldið vorið 2009.  Svala kastaði sem sagt brúnstjörnóttum hesti sem er ræktaður og í eigu Þórs og Siggu í Skriðu en þau héldu Svölu undir Mola sinn. Hitt folaldið er svartstjörnótt hryssa sem hefur ákveðin "kjöt"stimpil á sér enda fædd í þeim tilgangi. Það er samt aldrei gott þegar hrossakjötið er falleg, svartstjörnótt hryssa....Úff.

03.05.2009

Helgin var löng og ströng á Fornhagabúinu. Fyrir utan allslags félagslíf (tónleika, leikhús og bíóferðir) rákum við inn stóðið, klipptum hófa á rúmlega 20 hrossum og gáfum 30 hrossum ormalyf. Þá var farið í girðingavinnu og hrossunum skipt í þrennt. Fylfullu hryssunar eru komnar á "fæðingardeildina", geldhrossin í sérhólf og tryppin í sérhólf. Á myndunum hér að ofan er Arnar með hana Huldu frá Brúnstöðum, 3v. rauðskjótta hryssu undan Tenóri frá Tunguhlíð (8,12) Smárasyni frá Skagaströnd. Verulega flott hryssa með mikinn fótaburð og léttvíg. Ármann, okkar dyggi aðstoðarmaður og aðalsmiður, var að sjálfsögðu mættur á svæðið og hjálpaði til við hófsnyrtinguna.

Þessir tveir eru piparsveinar búsins, báðir fæddir 2007. Það er skemmtilegt að segja frá því að í tryppahópnum okkar eru allt hryssur nema þessir tveir kappar, Muggur t.v. og Einvörðungur frá Garði sá jarpskjótti t.h. Einvörðung eignuðumst við um daginn en hann er undan Flótta frá Borgarhóli (8,33) og er nauðalíkur pabba sínum í útliti. Vonandi á hann ekki eftir að gefa honum neitt eftir í hæfileikunum og tölta á skeiðferð. Einvörðungur er mjög flottur á litinn, rauðjarpskjóttur, blesóttur. Hann er alls ekki faxlaus...það er bara hinu meginn :o)

24.04.2009

Sauðburður hafinn! Loksins bar blessunin hún Skömm frá Skriðu (gemlingur) en hún hafði haldið húsráðendum á tánum í tæpa þrjá sólarhringa áður en lömbin komu í heiminn.  Hún var sem sagt tvílembd, átti tvær gimbrar, svarta og kolótta. Sú svarta hlaut nafnið Dimma en sú kolótta fær væntanlega nýja móður við fyrsta tækifæri þar sem eitt lamb dugir Skömminni alveg prýðilega.  Gullfallegar gimbrar tvær undan þeim þekkta Lambás frá Sveinungsvík og líklega fyrstu lömbin sem fæðast hafa undan honum þar sem Skömm fékk fyrsta daginn sem var í boði eða 30.11.'08.

18.04.2009

Um helgina var mikil hátíð í Reiðhöllinni á Akureyri en sýningin Fákar og fjör var þar á dagskrá ásamt ýmsum uppákomum yfir daginn.  Við fórum t.d. og kepptum í kynbótadómum og á myndinni hér að ofan er Anna að taka út fótagerð á grárri hryssu sem notuð var við dóminn. Það var einnig sérstaklega gaman fyrir okkur að sjá Ímu frá Akureyri en Þorbjörn Matthíasson reið henni í klárhryssusýningu þarna um kvöldið.  Íma er fædd okkur, undan Svölu frá Hurðarbaki og Hágangi frá Narfastöðum. Íma er stór og hágeng tölt hryssa, rauðnösótt, í eigu Óla G. Jóhannssonar.

12.04.2009

Miðvikudag fyrir páska héldum við einar fimm konur í mikla skíðagöngu og gengum inn Hörgárdal frá Staðarbakka. Ferðin var stórskemmtileg en nægur snjór er í dalnum til skíðagöngu.  Á myndinni hér að ofan eru talið frá vinstri: Bogga í Stóra-Dunhaga, Líney á Tréstöðum, Sigga í Skriðu, Sunna á Ósi og Anna í Fornhaga II.

07.04.2009

Til sölu MMC díesel pickup árg. 2000 - til greina kemur að taka hross upp í hluta verðs. Verð: 420.000,-
Nánari uppl. gefur Arnar í síma 893-1579 og í netfang fornhagi@fornhagi.is

 
06.04.2009

Arnar og Ævar með tryppunum
Blíðu, Huldu og Efa.
Ævar og Fló
vinkona hans.
Hulda frá Brúnastöðum
3v. í vor
Ævar og Arnar kíkja á Mugg
hans Ævars.


Það fer hver að vera síðastur að leika sér í snjónum því að hann er á verulegu undanhaldi (kannski sem betur fer...þó að vetrarsport sé alltaf mjög skemmtilegt). Auðunn fræsti á hjólinu sínu á snjóbreiðum sem hann fann á túninu. Þegar hann hafði spólað í nokkra hringi, tók hann sér hvíld frá því og klappaði hryssunum aðeins og skellti sér svo aftur á hjólið.  Það er því svona frekar vor í lofti.

05.04.2009
Fyrir rúmri viku spratt Anna á stað á laugardagsmorgni og gekk langleiðina upp á Lönguhlíðarfjall, í frosti og sól, með myndavélina að vopni og myndaði það sem fyrir augu bar.  Hér má sjá brot af því en á leiðinni rakst hún á spor eftir rjúpur, tófu, mýs og einhvern smáfugl sem ekki var hægt að greina nákvæmlega þar sem hann var ekki viðstaddur til að máta sporin :o)  Dásamlegur dagur, kaldur og fagur með ægifögru útsýni.
 

Syðri-Tunguáin í sólinni

Auðbrekkufjallið á "uppleið"

Náttúran er svo hrikalega falleg, frosin og björt

Sölnuð jurt á mel

Komin upp og myndavélin sá um að taka heimildarmynd af gönguhrólfinum.

Útsýnið uppi á Lönguhlíðarfjalli, séð í norðaustur.

Og útsýnið í norður, inn Þorvaldsdal

Á niðurleið glitti í Skriðu í skriðunni :o)

Staðsetningar"tæki" þeirra sem á undan fóru..

Góðir ferðafélagar, bakpokinn, göngustafirnir hennar mömmu :) og ullarvettlingarnir.


Fimmtudagskvöldið 02. apríl fórum við á árshátíð í Þelamerkurskóla þar sem Auðunn Orri (í miðið) spilaði á trompet, ásamt þeim Begga og Bensa, sem einnig eru í fjórða bekk eins og hann.  Þeir voru líka sögumenn í leikritinu sem þeirra deild sá um.  Hér eru tvær myndir af þeim köppum við sín störf í "leikhúsinu" á þessu skemmtilega kvöldi.

04.04.2009

Þarna er komin enn ein ný hryssa til okkar.  Þetta er hún Stör frá Jaðri (f. 2005) og er undan einum af okkar uppáhalds stóðhesti, Leikni frá Vakurstöðum. Stör var að lenda í Fornhaga II núna í kvöld.  Hún er afar þæg og traust í allri umgengni og virðist lyfta vel fótum.  Hún er vel bandvön en eitthvað lítið annað búið að gera við hana svo nú er bara að járna og taka til við tamingar :o)  Þá eigum við orðið tvær Leiknisdætur, Stör og Brynju, og í vor kastar Álfadís Orradóttir einnig við Leikni.  Það verður verulega spennandi eins og reyndar fleiri folöld sem falla á grundir Fornhaga þetta vorið, enda árið í fyrra eitt það kostnaðarsamasta hvað varaðar folatolla og því eru væntingarnar því líka þónokkrar.  Gaman, gaman....

Arnar og Gola frá Stakkhamri í sólinni í morgun. Það er alls ekki leiðinlegt að byrja daginn á reiðtúr á henni Golu sem er bæði þæg, þjál og vel viljug ef maður vill hafa hana þannig.  Draumareiðhross fyrir alla fjölskylduna og jafnvel nýtileg í keppnir.  Arnar hyggst prufa að mæta með hana í braut þegar líður nær sumri. Sérdeilis skemmtileg hryssa hún Gola okkar Gustdóttir.

p.s. og hvað haldið þið? Það kemur orðið eitt egg á dag úr blessuðum hænunum (samtals....alls ekki eitt úr hvorri, nei nei...það er sjálfsagt alger munaður)!  Þetta eru því sannkölluð páskaegg - ha ha ha :o) Stefnir í stórfelldan bakstur á næstunni!

03.04.2009

Suðurferð í vændum - förum um páskana í Fet til Ingu og Tona og einnig að kíkja á Brynju okkar hjá Erlingi í Langholti. Ætlum einnig að kíkja á stóðhestasýningu í Rangárhöllinni.


Jú jú...þetta eru blessuð hæsnin þeirra Auðuns og Ævars.  Þessar elskur hafa nú haft það verulega gott á hótel Fornhaga II.  Búnar að búa hér hjá okkur í fjórar vikur og úr þeim hafa komið 6 egg á þeim tíma - SAMTALS!!! Hvað ætli hvert egg kosti??? En við vonumst eftir meiri krafti í þetta og gefum okkur ekki fyrr en að við fáum 2 egg á dag :o) Koma svo...verpa!

28.03.2009

Þetta er hann Hreimur frá Fornhaga II og þarna var Arnar að fortemja hann í dag. Hreimur er undan henni Hörku (8,13) og Gígjari frá Auðsholtshjáleigu (8,46). Þennan fola ætlum við ekki að gelda og í dag bætti hann rós í hnappagatið þegar hann "tamdist" alveg hreint ótrúlega á stuttum tíma.  Þessi prúði hestur er mjög stór, fallegur og með hvelfda yfirlínu. Hann er traustur en næmur og við erum afar lukkuleg með hann.

24.03.2009
Bólusett, rúið og talið. Sjáið hvernig gengur í sauðfjárræktinni.

22.03.2009

Anna Guðrún og Vissa frá Barkarstöðum, fædd 2006 u. Kjerúlf frá Kollaleiru og Gleði Sveins-Hervarsdóttur frá Hákoti.
Í dag var dagur mikilla verka í hrossunum. Rákum inn stóðið, tókum þær Vissu og Rauðhettu og lékum okkur aðeins með þær á stéttinni. Hér fyrir ofan er Anna að fortemja hana Vissu. Við klipptum á henni hófana, kembdum og teymdum hana um og í kringum okkur. Vissa er eitt uppáhalds tryppið okkar, er mjög rúm og með mikinn fótaburð. Hún er afskaplega auðveld og fljót að læra. Hún er að vísu kannski ekki fallegasta hrossið hjá okkur :o/ en eitt það efnilegra. Það hjálpar henni nú heldur ekki að vera lúsug en það er óvenju mikil lús í útigangnum hjá okkur og Vissa hefur farið illa út úr þeirri óværu.


Börkur hans Auðuns Orra var tekinn inn í dag. Hann er á sjötta vetri og ekki nema mánaðar taminn (hmm) Hann hefur alveg mætt afgangi hjá okkur þessi elska þar til nú. Hann var frumtaminn í mán. í fyrra og nú á að taka til við þar sem frá var horfið. Skiptum á honum faxinu, tókum létta upprifun á stéttinni í að teymast við hlið og fórum svo út til að skjóta einni mynd af karlinum. Þetta er stór og mikill hestur, fallegur og síðfextur og alhliða gengur.


Og fleira af hrossum dagsins :o) Sómi 11v. sá jarpskjótti, var einnig tekinn á hús.  Hann er "hinn" hesturinn hans Auðuns Orra og því fékk hann inn í dag báða sína hesta, jarpskjóttan og rauðskjóttan. Sómi er klettur búsins. Þægur og traustur reiðhestur sem hentar flest öllum knöpum af öllum stærðum. Þá er þarna líka nýja hryssan okkar hin svarta Sandra frá Hvassafelli.  Hana keyptum við á dögunum en hún hefur hlotið 7,81 í aðaleinkunn og er undan Höldi frá Brún. Söndru sóttum við í dag og bættum í stóðið en hún er geld (var ekki haldið í vor) og því kemur ekki folald úr henni þetta vorið. Örmerktum Hespu og Melódía fór á bíl suður yfir heiðar á leið til Þýskalands. Það var því nóg um að vera í dag í sólinni í Fornhaga II.

20.03.2009
Þeir stóðhestar sem við komum til með að fá undan í vor/sumar eru alls ekki af verri endanum. Þetta eru allt miklir kappar og með háa aðaleinkunn.

Álfur frá Selfossi (8,46)
Undir hann fór
Tíbrá frá Hvanneyri (8,10)
Leiknir frá Vakurstöðum (8,28) undir hann fór
Álfadís Orradóttir frá Ásmundarstöðum (7,78)
Glymur frá Innri-Skeljabrekku (8,38) undir hann fór
Harka frá Akureyri (8,13)
(mynd með leyfi glymur.blog.is)
Tenór frá Túnsbergi (8,38)
undir hann fór
Fló frá Akureyri (7,65)

Aðrar hryssur hjá okkur fóru svo undir hinn ósýnda Drang frá Hjallanesi I en hann var hjá okkur í Fornhaga II í sumar.  Drangur er undan Roða frá Múla og er á fimmta vetur núna.  Hann mun líklega mæta til dóms í vor. Drangur er albróðir gæðingshryssunnar Atleyjar frá Reykjavík sem er með 8,25 í aðaleinkunn og fjórar níur í hæfleikum (skeiðlaus).

Drangur frá Hjallanesi I (f.2004)
F. Roði frá Múla
Rauðhetta frá Haga
fór undir Drang
Mær frá Sólheimatungu
F. 2005 fór undir Drang
Blíða frá Tyrfingsstöðum
F.2005 fór undir Drang


Þá fór Svala frá Hurðarbaki undir gæðinginn Mola frá Skriðu (8,21) en það folald verður í eigu Þórs og Siggu í Skriðu enda fengu þau hryssuna lánaða hjá okkur. Svala er afskaplega frjósöm hryssa, gefur gríðarstór afkvæmi sem oftar en ekki eru fallega lit (brúnblesótt leistótt, slettuskjótt, móvindótt leistótt o.fl.) en hefur reyndar verið afskaplega spar á litina þegar hún kemur með hryssur.  Það væri óskandi að hún breyti nú út af vananum og komi með brúnblesótta, leistótta hryssu handa Skriðubúinu. Svala fer líklega aftur undir Mola í sumar, þá á okkar vegum.

19.03.2009

Arnar og Titill frá Akureyri
(8v.) Fákaflug 2002
Harka frá Akureyri (4v.) 8,13 og Björn Einarsson, LM2002 Arnar og Bruni frá Akureyri (9v.) Björgum 2008 Anna og Maur frá Fornhaga II (4v.) Syðstu-Fossum 2008

Þessi fjögur hross hér að ofan eru öll mikið skyld og öll úr okkar ræktun. Þau Titill, Harka og Bruni eru öll undan Ör frá Akureyri, sem er formóðir þessara hrossa sem eru okkar aðal ræktunarhross í dag og svo Maur (stóðhestur u. Rökkva Hárlaugsstöðum) er svo undan Fló frá Akureyri, sem er sammæðra þeim hinum þrem. Mikill fótaburður er þessum hrossum eðlislægur. Þau eru með trausta lund og eru auðveld í tamningu, þæg og með góðan vilja.  Sum mjög viljug og önnur meira svona eins og maður vill hverju sinni. Af þessum stofni eigum við ennþá þær Hörku og Fló í ræktun, og undan þeim afkvæmi t.d. undan Gígjari Auðsholtshjáleigu, Asa Kálfholti, Þorsta frá Garði og nú kasta þær við þeim Glym frá Innri-Skeljabrekku (Harka) og Tenóri frá Túnsbergi  (Fló).

15.03.2009

Þessi hryssa er ný hjá okkur, Gola frá Stakkhamri.  Gola er undan Gusti frá Hóli og fyrstuverðlauna hryssunni Pílu frá Stakkhamri. Gola er 12v. í vor, alþæg og fljúgandi geng alhliðahryssa með góðan vilja. Við erum afar lukkuleg með hana Golu enda hin prúðasta í alla staði.


Það er skammt stórra högga á milli og í dag fór Huginn Huginsson til nýrra eigenda. Það var því tómlegt í hesthúsinu þegar hann var farinn og tímabært að fara að taka fleiri hross inn. Þarna er Anna að knúsa karlinn áður en hann fór á bílinn enda svona blendnar tilfinningar að láta frá sér svona glæsilegan hest. Vonandi verður hann nýjum eigendum happafengur.  


Dagurinn í dag fór að mestu í smíði á hæsnakofanum. Kolla systir á Úlfsstöðum, kom nefnilega með tvær hænur um helgina og það voru afmælisgjafirnar þeirra Auðuns og Ævars. Nú hænunar mega dúsa í bráðabirgðabyrgi í skálanum á meðan öll fjölskyldan hannar og smíðar þetta glæsihýsi sem verður með öllum lúxus. Við segjum nánar frá þessu meistarastykki þegar hænurnar flytja inn!

09.03.2009

Hver er þetta? Jú, hann Muggur hans Ævars Ottós.  Muggur er fæddur 2007 undan Maur frá Fornhaga II og Uglu frá Frostastöðum.  Hann er eina afkvæmi Maurs, sem við eigum, en Maur seldum við sl. haust.  Muggur er rauðglófextur, blesóttur, leistóttur og hinn gæðalegasti hestur. Muggur er fæddur afa Grétari, eins og Ævar segir, og er "rauðblesótti minn"!

07.03.2009

Þetta var erfiður dagur í hesthúsunum en hryssan okkar, hún Breiða frá Syðstu-Fossum, var aflífuð í dag eftir stutta og harða hrossasótt. Þrátt fyrir dýralækna og allar lyfjagjafir sem í boði voru, náðist meltingin ekki í gang og kvalirnar voru orðnar óbærilegar fyrir blessaða hryssuna og því var hún felld. Breiða var móálótt alhliðahryssa, mjög stór og háfætt með flottan fótaburð. 

06.03.2009

Ný hryssa hjá okkur - Sandra frá Hvassafelli (7,81).  Þessa hryssu keyptum við af Hjördísi Ýr Bessadóttur en hún er knapi á hryssunni á myndinni hér að ofan.  Myndin er tekin árið 2002 og Sandra er fædd 1995. Faðir Söndru er Höldur frá Brún. 

04.03.2009

Fjallasýnin sem við höfum hér í Fornhaga er stórfengleg. Nú þegar ríkir vetur og hvít mjöllin liggur yfir öllu, renna nánast saman í eitt himinn og jörð. Þessar myndir tókum við á laugardaginn var. Á fyrri myndinni eru skjóttu systkinin Hulda (3v.) og Börkur (6v.), bæði frá Brúnastöðum, þá rauðblesótti Muggur (2v.) hans Ævars og á milli glittir í hana Lokku (13v.), jarpa.  Á seinni myndinni er Árvakur (2v.) Orrasonur að monta sig samkv. venju.

26.02.2009

Melódía frá Starrastöðum, móvindskjótt merfolald sem er til sölu hjá okkur (SELD).  Melódía er bollétt, fríð og faxprúð og mikið geng.  Fer mikið um á tölti en brúkar líka skeið og brokk.  Melódía er undan þessum svaka litfagra hesti, Fönix frá Starrastöðum, sem er líka móvindóttskjóttur eins og hún.

Fönix frá Starrastöðum sumar 2008. Myndina fengum við senda frá Söru Einarsdóttur. Hross til sölu.



Margt líkt með líkum! Á fremstu myndinni er Hnota frá Fornhaga II u. Maur frá Fornhaga II en hann er einmitt á næstu mynd að elta hana Svölu frá Hurðarbaki.  Hnota er undan Doppu frá Tindum sem nýverið var seld til Þýskalands. Fótaburðurinn alveg genatískur :o)  Annars er Hnota hin ljúfasta, hún er folald frá því í sumar og er á húsi ásamt fimm öðrum smágrislingum.  Arnar tók Hnotu í dag í smá fortamningu og kunni hún því afar vel enda finnst henni mannfólk hinir áhugaverðustu strumpalingar. Dásamlegt hross hún Hnota og bara gaman að vinna við hestamennskuna þegar svona vel gengur.


Hér eru félagar hennar Hnotu í hesthúsinu...að gæða sér á kvöldmatnum. Smellið á myndina til að lesa textann sem er þar inná.


Svona í tilefni sólar og frosts tókum við okkur svo til og lékum okkur úti í snjónum. Auðunn Orri og Ævar Ottó eru þarna að munda stærðarinnar grýlukerti sem þeir tóku af hesthúsinu. Eftir að myndatökum lauk var hoppað á snjósleðann og sett þotubretti aftaní og þeyst um öll tún.  Dásamlegur dagur í sveitinni.

14.02.2009

Bruguðum aðeins á leik í sólinni í dag og hér er undir hnakknum hinn hesturinn hennar Hrafnhildar (sem á Bruna á myndinni hér að neðan) hann Ísak frá Barkarstöðum.  Ísak er enn hjá okkur í þjálfun og fer væntanlega til síns heima á næstunni.  Það verður ekki amalegt fyrir frú Hrafnhildi að hafa þessa tvo snillinga saman á húsi og sér til ánægju, þá Bruna og Ísak. Þeir eru stórir, gæfir, myndarlegir og hágengir en gjörólíkir þó. :o)

10.02.2009

Þetta er hann Bruni okkar sem á núna heima hjá Hrafnhildi Sigurðardóttur í Borgarnesi.  Hrafnhildur eignaðist Bruna hjá okkur sl. haust og þarna er karlinn mættur á sitt fyrsta ísmót í Borgarfirðinum, á Álatjörn, hjá hestamannafélaginu Skugga sl. laugardag.  Knapinn er sonur Hrafnhildar, Birgir Andrésson, en þeir lentu í sjötta sæti með einkunina 6,50. Frábær byrjun á góðum vetri hjá Bruna og nýjum eigendum og óskum við þeim alls hins besta í framtíðinni.

10.02.2009

Móvindskjótt merfolald og rauðkinnskjótt mertryppi til sölu.  Kíkið á "Hross til sölu"

08.02.2009

Þá er hann mættur á hús hann Huginn Huginsson frá Sólheimatungu en við sóttum hann í útiganginn í dag.  Huginn er eins og nafnið hans gefur til kynna, undan Huginn frá Haga. Þessi stóri og myndarlegi brúni geldingur sem verður sjö vetra í vor, er búinn að fara svolítið löngu leiðina hjá okkur en hann eignuðumst við sl. haust og þá kom í ljós að hann var með brotið griffilbein.  Það var skorið og lagað og nú er komið að því að byrja að þjálfa karlinn að nýju.  Þjálfunin verður því mjög á rólegu nótunum fyrsta mánuðinn og vonast til að allt fari á besta veg. Þessi hestur er alhliða gengur með góðan fótaburð og útlitið alveg í lagi! Spennandi tímar framundan með Huginn.


Þetta eru kisarnir okkar þeir Klói (svartur og hvítur) og Gulur (hvítur). Auðunn og Ævar hittu þá í húsunum í dag og gáfu þeim nokkur knús. Klói er svo sniðugur köttur, hann liggur í garðanum hjá rollunum þegar þær eru að éta og lætur þær henda sér til og frá með snoppunni (þegar þær eru að kasta til heytuggunum) og finnst þetta áreiti sérstaklega notalegt.

Gulur er heyrnalaus, eins og mamma hans, en það er víst algengur fylgikvilli snjóhvítra katta. Ævar rogaðist með Gul í fanginu sem lét sér fátt um finnast en sökum ofeldis kattarins gafst hann fljótt upp á þessum "kattarburði". En Gulur er hans köttur og því skal hann láta sér það lynda að þessi tveggja ára stubbur kúldrist með hann í fanginu eftir hentugleik.

31.01.2009

Árvakur að spreyta sig á frostblíðunni um liðna helgi.  Sólin passlega farin þegar ljósmyndarinn mætti á svæðið og því voru bara teknar svona "bláar myndir" af honum.

25.01.2009

Þetta er hann Árvakur frá Vindási (f. 2007 - ógeltur) en hann kom á hús í gær og í dag var hann sviptur mest öllu hárinu.  Árvakur keyptum við fyrir um ári síðan en hann er undan Orra frá Þúfu (8,34) og Vöku frá Vindási (7,89).  Hann er albróðir gæðingsins Orðu frá Vindási sem hlaut 8,20 fyrir byggingu og 8,35 fyrir hæfileika og 8,29 í aðaleinkunn þá 6v. gömul. Árvakur er gríðarlega faxprúður og mikið Orraútlit á honum karlinum en hann eigum við til helminga með Óla G. Jóhannssyni, listmálara.


Og þarna er Arnar á henni Breiðu frá Syðstu-Fossum. Hún er gríðarlega stór og háfætt (153 cm. á band), móálótt alhliða hryssa.  Breiða er ákveðin, gangmikil og hágeng hryssa sem er orðin vel reiðfær en svona frekar hrá ennþá.  Þessi hryssa er efni í keppnishross enda verulega lofthá, með magnað ganglag og lyftir vel. Svo er þarna mynd af folöldunum okkar sem fengu að fara út í dag og velta sér í "drullunni". Það þótti þeim verulega gaman en útlitið á þeim var eiginlega ekkert "gaman" þegar þau komu inn. Stjarna dagsins (eins og svo oft áður) var hún Hildur Moladóttir.  Einfaldlega æðisleg hryssa (folald). Fljúgandi geng með flottum fótaburði, grannan flottan háls og alveg gæf. Hún hljóp um allt, spændi svo beint í fangið á manni til að fá knús og þaut í burtu aftur til að "skvetta sér" með hinum folöldunum. Svo fann ég eina skemmtilega mynd frá í sumar - það eru þær stöllur Hulda frá Brúnastöðum (rauðskjótt), Blíða frá Tyrfingsstöðum (rauðblesótt, leistótt, hringeygð) og Gloría frá Fornhaga II (rauðglófext, stjörnótt).

20.01.2009
Stóðhestur sumarsins hjá okkur í Fornhaga II verður heiðursverðlaunahesturinn Þorri frá Þúfu. Þorri verður hjá okkur á fyrra tímabili og hefst því gangmálið á tímabilinu 10.-20. júní (eftir árferði). Það verður einungis tekið við 20 hryssum undir hestinn og hefur nú þegar verið pantað fyrir 18 hryssur þannig að ef enginn "beiðir upp" þá eru einungis tvö pláss laus undir klárinn. Þá verður Aðall frá Nýjabæ stóðhestur hjá Framfara í sumar og hefst tímabilið hjá honum í kringum 15. júlí.

18.01.2009

Nýjar á Fornhagabúinu.  Þessar hryssur keyptum við vestan úr Skagafirði.  Brúna hryssa er Mánadögg frá Starrastöðum (12v.), vindóttskjótta folaldið undan henni er Melódía frá Starrastöðum. Rauðblesótta hryssan er Lipurtá (12v.) frá Syðri-Ingveldarstöðum og rauðskjótta hryssan er Rauðhetta (2v.) frá Hvíteyrum. Eldri hryssurnar tvær eru báðar fylfullar. Að heiman í þetta sama skipti fluttu þær Glóð frá Skjólbrekku (5v. Kveiksdóttir) og Eining frá Snæringsstöðum (2v.)

17.01.2009

Folaldasýning á Ytri-Bægisá. Fórum með Hreim, Hnotu, Hildi, Hespu og Emelíu. Svaka stuð, Hreimur haltur og hoppaði jafnfætis um allan völl :o) Emelía var svo boðin upp í leiks lok og flyst til í sveitinni. Hún var skreytt hvítum doppum í tilefni dagsins og vakti það þónokkra lukku viðstaddra. Það voru því árleg "afföll" á folaldafjöldanum á þessari sýningu en í fyrra áttum við hryssu (Grýlu frá Fornhaga II) í verðlaunasæti og seldum hana á staðnum. Á myndunum hér að ofan er Emelía (sú brúndoppótta) og sá rauðstjörnótti er sigurvegari sýningarinnar, Álmur frá Skriðu. Álmur er undan Álfi frá Selfossi og Dalrós Moladóttur frá Arnarstöðum. Ræktendur og eigendur hans eru Þór og Sigga í Skriðu. Glæsilegur grannbyggður og stór foli. Í flokki hryssna var einnig Álfsbarn í efsta sæti en það var Leynd frá Litlu-Brekku.  Leynd er undan Líf ÁsaÞórsdóttur frá Litlu-Brekku og ræktendur og eigendur hennar Vignir og Jónína í Litlu-Brekku.

14.01.2009

Ný folaldastía í hesthúsinu. Nú geta folöldin okkar tekið dansspor í þessu nýja rými sem er hið glæsilegasta og smíðað úr pöllunum okkar einu sönnu. Það eru sex folöld inni þennan veturinn og eru þau öll orðin "hárlaus" eftir nýafstaðinn rakstur. Þannig finnst okkur þau þrífast best, taka svaka vel fóðri og haldast þurr og frekar hrein.

02.01.2009

Brynja frá Árbæ fór suður yfir heiðar til ferkari þjálfunar hjá Ella og Viðju í Langholti. Brynja sem er fædd 2004 hlaut 8,14 í aðaleinkunn sl. sumar þá 4v. gömul.
 

01.01.2009

Hreimur frá Fornhaga II undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu (8,46) og Hörku frá Akureyri (8,13). Hreimur er nýkomin á hús og var með það sama sviptur "ullinni" og er því eins og móálóttur að lit en er brúnn "með hári".  Hreimur er stór og myndarlegur, feitur og í rosa flottu standi.  Þessi foli er næsta stóðhestsefni Fornhagabúsins.