Síðast uppfært 20.03.2009

  Eldri fréttir 2006-2008

Heim
Fréttir
Hross til sölu
Hrossin okkar
Fornhagi II
Sauðfjárrækt
Hallveigarstaðir
Myndir
Um okkur
Framfari

23.12.2008

 

14.12.2008

Búið að taka á hús nokkra hausa.  Ísak er kominn á járn og er að undirbúa flutning að heiman. Einnig er komin á hús Glóð frá Skjólbrekku, 4v. Kveiksdóttir (Miðsitju) sem gengur á fimmta vetur.  Glóð eignuðumst við í haust og fengum með henni hana Emelíu frá Borgarnesi sem er folald undan Glóð og Þey frá Leirulæk.  Emelía er glóbrún, undan glóbrúnum hesti sem er svo aftur undan Fálka frá Geirshlíð sem er moldóttur. Myndirnar hér að ofan fengum við sendar frá fyrri eigendum og eru af þeim Glóð og Emelíu sl. vor. Svo er ein mynd af Ísak karlinum sem á vonandi eftir að verða farsæll hjá nýju eigendunum.

12.12.2008
"Fálkakjöt" með "opnum huga".  Kíkið á pistil um sauðféð.

12.12.2008

Í sumar fæddust okkur 7 folöld, þar af 5 hestfolöld.  Það vekur jafnan minni kátínu hjá okkur þegar koma hestfolöld en þá er bara að vera duglegur að umbreyta þeim í hryssur.  Af þessum 5 hestfolöldum er einungis eitt eftir hjá okkur, Hreimur Gígjarssonur undan Hörku (8,13) okkar. Hann er að sjálfsögðu stóðhestsefni okkar þess árs.  Tvö hestfolöld hlutu svo ný heimilsföng, þeir Helmingur og Hrólfur Hófssonur en eitt hestfolaldið fórst skömmu eftir köstun og einn hlaut þau örlög að vera slátrað enda verulega lítið fyrir augað.  Þá fjölguðum við hryssunum um þrjár (fæddar 2008) og þá eru núna 5 merfolöld og eitt hestfolald á búinu.  Svona er þetta nú skrítið allt saman.

09.12.2008

Það er alltaf hamingja á okkar bæ að eiga fallegar hryssur, hvað þá með góðum lit. Hér eru þrjár berrassaðar skvísur sem voru teknar á hús á dögunum, að fá sína fyrstu fortamningu.  Sú ljósaskjótta er Hespa frá Brúnastöðum, stór, þæg og traust pæja.  Sú vindóttskjótta er Hrönn frá Starrastöðum, öllu líflegri en stalla hennar Hespa og sú rauðstjörnótta er krúttið í hópnum Hildur frá Fornhaga, undan Mola frá Skriðu og Álfadísi Orradóttur.  Hildur er afar vel gerð, töltgeng og dásamlega geðgóð. Smellið á myndirnar af þeim hér fyrir neðan til að sjá þær stærri.

 

28.11.2008
Hver fór undir hvern? Kíkið á fangskýrsluna okkar.

23.11.2008

Hildur frá Fornhaga II Hrönn frá Starrastöðum
Stóðréttir!  Rákum inn stóðið, tókum folaldshryssurnar frá og tókum undan þeim öllum nema tveim (Fló og Hörku).  Það eru því 5 merfolöld komin á hús, þrjú þeirra hafa verið svipt feldinum og eru nánast alsber.  Þær standa því keikar við stallinn í húsunum litla djásnið okkar hún Hildur frá Fornhaga II (undan Mola frá Skriðu og Álfadísi Orradóttur), Hespa frá Brúnastöðum (ljósaskjótt, blesótt), Hrönn frá Starrastöðum (móvindskjótt, blesótt), Emilía frá Borgarnesi u. Glóð Kveiksdóttur og Hnota frá Fornhaga II undan Doppu og Maur. Þá vantar bara hann Hreim frá Fornhaga II inn á hús en hann er undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Hörku frá Akureyri. Hreimur er stór og mikill töffari og að sjálfsögðu stóðhestsefni búsins.  Félagi hans, Hrólfur frá Fornhaga II, undan Hófi frá Varmalæk og Fló frá Akureyri, hefur verið seldur og kemur því ekki á hús hjá okkur.

06.11.2008

Nýtt á söluskrá!  Glóra frá Gröf I. Frábær litur, moldótt og sokkótt á öllum fótum.  Þægt og nokkuð auðvelt reiðhross.  S E L D

24.10.2008
Í tíð kreppunnar er alls ekki slæmt að vera hestamaður.  Hross í haganum eru betri verðbréf en mörg önnur en að sjálfsögðu þarf að huga að mörgu í peningamálunum.  T.d. er mjög dýrt að reykja og því ekki svo galið (fyrir þá sem geta ekki verið án þess) að samnýta "reykinn". Hér má sjá hvernig það er hægt:

07.10.2008

Ný hryssa hjá okkur er þessi moldóttsokkótta hryssa, Glóra frá Gröf I.  Hún er 6v. gömul og virðist vera afar þæg en Arnar skaust á bak henni járnalausri svona rétt til að máta hana.  Þær höfðu sem sagt aðsetursskipti hún og Ást frá Miklabæ (sú brúnblesótta).

03.10.2008
Kíkið á sauðfé.

02.10.2008
 
Þetta er hún Hrönn frá Starrastöðum.  Hún er móvindóttskjótt (blesótt) og hana keyptum við nýverið. Hrönn er fædd 2008 og er enn sem komið er í fylgd móður sinnar, vestur í Skagafirði, en mun væntanlega lenda á grundum Fornhaga með kólnandi vetrartíð.  Hrönn er góð viðbót í litaflóru Fornhagabúsins en verulega hefur dökknað yfir hrossahópnum þar undanfarið og nauðsynlegt að lýsa hann upp með lit sem þessum.  Eins eignuðumst við í haust ljósaskjótt merfolald (eða moldskjótt...höfum ekki séð það enn og því liggur nákvæm litagreining ekki fyrir).  Setjum inn myndir af því síðar.

30.09.2008
Ást frá Miklabæ
Þorri frá Ytri-Hofdölum
Þetta eru þau Ást frá Miklabæ, tveggja vetra (efri) og Þorri frá Ytri-Hofdölum, veturgamall (neðri). Þau voru afrakstur ferðar okkar í Laufskálaréttir um liðna helgi.  Ást er undan slettuskjótta fyrstuverðlaunahestinum Hörgli frá Steðja. Þorri er undan Flosadóttur og Hrafnari Markúsar (Langholtsparti) syni.  Smellið á myndirnar af Þorra til að sjá þetta glæsitryppi.  Hann er stór og lofthár, mjög vel gerður með óvenju mikinn prúðleika. Það verður nóg fyrir framan knapann á þessum hesti :o) þar sem hann er bæði hálslangur og reistur með fallega hnakkabeygju.

16.09.2009
Stóðhestur á Fornhagabúinu sumar 2009 verður Þorri frá Þúfu.  Þorri verður hjá okkur í fyrra tímabili og fer því í hólf eftir miðjan júní (fer eftir tíðarfari).  Þorri verður líklega seldur út á innan við 50 þús. kr. með öllu og höfum við ákveðið að takmarka hryssufjöldann við 20 stk. en þegar er búið að panta fyrir 14 hryssur. Þorri er eins og flestir vita heiðursverðlaunastóðhestur undan Orra frá Þúfu.

15.09.2008

Hér er hann Huginn frá Sólheimatungu.  Hann er í "stofufangelsi" þar sem hann fór nýverið í aðgerð við brotnu griffilbeini og er því á húsi til að klára læknismeðferðina.  Huginn er undan nafna sínum frá Haga og hryssu undan Adam frá Meðalfelli.  Huginn er 6v. stór og myndarlegur hestur, lítið gerður fimmgangari. Verður vonandi heill heilsu þegar kemur að því að taka á hús í des. og verður með fyrstu hestum inn enda verkefni frúarinnar á bænum í vetur :o)  Myndarskapinn vantar alla vegana ekki...hitt verður að ráðast.

14.09.2008

Stóðhestur sumarsins hjá okkur í Fornhaga II var Drangur frá Hjallanesi I.  Drangur er 4v. undan Roða frá Múla og albróðir Atleyjar frá Reykjavík (8,25). Drangur fór ekki í dóm að þessu vori en stefnt er á dóm vorið 2009. Við héldum 5 hryssum undir Drang, þeim Doppu frá Tindum, Gleði frá Hákoti, Blíðu frá Tyrfingsstöðum, Mær frá Sólheimatungu og Rauðhettu frá Haga.

18.08.2008
Brynja hækkaði lítillega í yfirlitssýningu í dag.  Hún hækkaði um hálfan í stökki og endar því í 8,14 í aðaleinkunn.  Frábær árangur hjá "litlu brúnku" eins og við köllum hana.  Brynja stóð efst í flokki 4v. hryssna á þessari síðsumarssýningu á Gaddstaðaflötum.  Sjá frétt á vef Hrossaræktar.

Dómur, 18.08.2008 - 4v.:
B: 7,5-8,0-9,0-8,0-7,5-8,5-8,5-8,0 = 8,08
H: 8,5-8,0-6,5-8,5-9,0-8,5-6,0 = 8,18
Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 7,5
Aðaleikunn: 8,14

12.08.2008

Hamingjustund hjá Brynjueigendum.  Skelltum okkur á Hellu og sáum Brynju frá Árbæ IS2004286-939 (sameign Fornhaga og Litlu-Brekku bænda) í kynbótadómi.  Brynja hlaut 8,14 í aðaleinkunn 4v. og voru það afar lukkulegir eigendur sem sátu í brekkunni og fylgdust með gengi hennar.  Brynja er fasmikill, hágengur orkubolti og verður stefnt með hana í frekari tamningu og dóm að vori 2009. Sýnandi og tamningamaður er Erlingur Erlingsson.

08.08.2008

Kíkið á hross til sölu og sjáið Maur frá Fornhaga II - 4v. stóðhestur til sölu.  Fluggengur, stór og efni í hörku fimmgangara.

30.06.2008

Álfadís Orradóttir kastaði við Mola merfolaldi.  Hún hlaut nafnið Hildur og er rauðstjörnótt og afskaplega bollétt og smart. 

07.06.2008

Svala fór undir Mola frá Skriðu en Þór og Sigga í Skriðu halda henni þetta vorið.  Vonandi verður lukkan þeim í vil og skilar þeim brúnblesóttri, leistóttri hryssu, með fax út um allt...eins og Svala er.  Svala er undan Orion frá Litla-Bergi.

06.06.2008

Skelltum okkur á Gleðileika Framfara í kvöld og kepptum í tölti.  Anna keppti á Sól frá Litla-Dunhaga, 6v. undan Andvara frá Ey.  Fín hryssa í eigu Jósavins Gunnarssonar í Litla-Dunhaga.  Arnar keppti á Bruna frá Akureyri, 9v. tröllhestur sem er að byrja að stíga sín fyrstu töltskref eftir rúmlega þriggja ára pásu en þessum hesti var riðið 5v. og svo ekkert fyrr en 9v.  Svona er nú lífið skrítið á köflum.

05.06.2008

Einmuna veðurblíða hefur verið undanfarna daga.  Þá er tíminn nýttur í t.d. að gelda ungfolana, skella sér í sund á sólpallinum og dást að hryssum og folöldum sem vappa fyrir utan eldhúsgluggann.  Lífð verður vart betra í sveitinni. Á myndunum hér að ofan eru t.v. Birkir Már (9), Ævar Ottó (2) og Auðunn Orri (9) í sundi.  Þá Helmingur frá Fornhaga II.  Óskar, Arnar og Christina við geldingu á Mugg hans Ævars og að lokum Svala sæta frá Hurðarbaki.

02.06.2008

Gleði frá Hákoti (Sveins-Hervarsdóttir) kastaði brúnu hestfolaldi við Héðni frá Reykjavík.  Folaldið fékk nafnið Hrói og er fjórða hestfolaldið á þessu vori.

01.06.2008
Harka frá Akureyri kastaði í dag hestfolaldi við Gígjari frá Auðsholtshjáleigu.  Hesturinn hlaut nafnið Hreimur og er brúnn, stór og frekar myndarlegur.  Eitthvað tafðist "fæðingin" og þurfti "ljósmóður"
á staðinn til að kippa í karlinn en hann sat sem fastast á annarri framlöppinni...sem ekki vildi fylgja með.
 


Harka að gera sig klára
 

..haus og fætur...

....en folaldið greinilega mjög stórt.....
 

....og ekkert gekk....enda annar framfóturinn eitthvað beyglaður og vildi ekki koma lengra...
 

...þannig að Anna dró folaldið út

...jæja...það hafðist...

...og þarna er hann....
..Hreimur Gígjarssonur....

"Hvað á ég eiginlega að gera
við þessar fætur?"

Ævar Ottó, Jónsteinn Helgi og Egill Már, kíktu á nýfætt folaldið.

...umm...best að finna mjólkursopa.

Auðunn Orri, Ævar Ottó og Birkir Már heilsuðu upp á Fló og Hrólf
 (u. Hófi frá Varmalæk)

Anna og Ævar að degi loknum...lentu í símanum á
"innleiðinni" eins og
stundum áður.... :o)

28.05.2008

Fló kastaði í dag hestfolaldi við Hófi frá Varmalæk og fékk það nafnið Hrólfur. Líklega er hann nú frekar dökkrauður (dreyrrauður eða sótrauður) og stjörnóttur.  Eitthvað ætla þessi rauðu gen að sitja sem fastast hér en í fyrra fæddust 4 folöld hér á bænum, öll rauð og öll undan brúnum hryssum.  Nú eru tvær brúnar hryssur (önnur brúnblesótt) kastaðar og bæði folöldin rauð í grunnlit og feðurnir báðir brúnir.  Þetta er einkennileg tilviljun. 

26.05.2008
  
Kíkið á hross til sölu.  Þar er gullfalleg unghryssa, Glódís frá Króki, til sölu. S E L D

25.05.2008

Guðbergur flutti að heiman í dag.  Hann fór í "sveit" í Skagafirði og þrátt fyrir hósta og stunur við að koma greyinu í gang, hafðist það á endanum og hann brunaði út veg undir styrkri stjórn svarfdælsks hestamanns.  Guðbergur er einn af "stofnfélögum" Fornhagabúsins og var meðal annars viðstaddur fyrstu skólfustunguna að íbúðarhúsinu okkar.

20.05.2008
Arnar fór í það að fortemja hana Blíðu frá Tyrfingsstöðum þegar hún kom til okkar á dögunum.  Blíða var algerlega óbandvön og lítið svo sem fyrir þess slags samskipti.  Eftir einar 15 mín. var hún orðin hin "blíðasta" og ber því nafn með rentu.  Blíða er undan honum Maska frá Akureyri, sem er slettuskjóttur, en Blíða er sótrauðblesótt, hringeygð með leista.
 


Arnar og Blíða - fyrstu samskipti.
 

Fortamningar

Tamningamaður:
Arnar Sigfússon

Tryppi:
Blíða frá Tyrfingsstöðum
3v. gömul


Farin að kjammsa...
 

...rólegheitin uppmáluð..
 

Unnið með spotta til að venja
hana við allskyns snertingu.

 

Eftir 15 mín var
hægt að teyma hana
um allt og láta elta sig.

 

19.05.2008

Opna Norðurlandsmótið í hestaíþróttum verður 24. og 25. maí.  Sjá nánar hér.

19.05.2008

Loksins, loksins....þá fæddist folald á þessu vori í Fornhaga II.  Svala kastaði rauðblesóttum hesti við Maur Rökkvasyni.  Vonin var þó hryssa (eins og alltaf) en það er viðbúið að maður fái ekki alltaf það sem maður óskar sér.  Fallegur hestur engu að síður og hefur hlotið nafnið Helmingur.

16.05.2008
Fjölgaði um þrjá hausa á bænum!  Fórum í Skagafjörðinn til pápa og sóttum þrjú hross.  Eina unghryssu og tvö fullorðin reiðhross.  Gaman að því.

01.05.2008
Knapamerkin klárðu á Dalvík.  Anna fór í dag og tók verklegt próf í Knapamerkjunum 2 á Dalvík.  Þrátt fyrir að Ísak hafi nú þreytt verkefnið með henni í allan vetur, varð það Bruni sem varð fyrir valinu í prófinu enda kom í ljós á síðustu metrunum að verkefnið mátti leysa allt á brokki og þá var nú Ísak svona veiki hlekkurinn. 

23.04.2008
Nú eru "jól" hrossaræktenda framundan enda kynbótasýningarnar að fara í gang.  Hér má sjá ýmsar upplýsingar um kynbótasýningar og reglur tengdar þeim. 

07.04.2008

Gamall refur mættur undinn hnakkinn!  Bruni frá Akureyri, 8v. undan Brunni frá Kjarnholtum og Ör frá Akureyri (móður Hörku og Flóar).  Þessi hestur var fumtaminn 5v. og síðan hefur honum ekki verið riðið.  Hann er því eins og lítið ekinn Bens....nema hvað Bensinn er nokkuð viljugur áfram og þess eitthvað minna viljugur.... :o)  Arnar var hins vegar glaður með fyrsta reiðtúrinn, eftir hið langa hlé, og það er fyrir mestu.
 

05.04.2008
Dagur mikilla verka í hestunum.  Rákum stóðið inn, klipptum hófa og snyrtum tögl og gáfum svo öllum hausum ormalyf.  Gaman að taka tryppin og handleika þau aðeins, sjá hvað er vert að eiga og hvað er kannski síðra og má missa sín.  Það er nú einfaldast frá því að segja að ekkert má núna missa sín :o)  Það hlýtur að boða bara nokkuð gott.  Í stóðinu okkar núna eru ung tryppi undan t.d. Orra frá Þúfu, Þorsta frá Garði, Glóðari frá Reykjavík, Kjerúlf frá Kollaleiru, Asa frá Kálfholti o.fl.  Ræktunarhryssurnar eru undan Orra frá Þúfu, Kjarki frá Egilsstaðabæ, Sveini-Hervari frá Þúfu, Orion frá Litla-Bergi o.fl.  Það er því margbreytilegur hópurinn enda gott að hafa þetta passlega blandað bæði af ættum, litum og lögun. 
 


Doppa, Hálfdán og
Fornöld

Fregn, Hálfdán og
Hulda

Svala frá Hurðarbaki

Systurnar Gloría og
Grafík, Asadætur

Anna með þær Vissu frá
 Barkarstöðum og Fornöld

Ármann mætti að sjálfsögðu
og lét ekki sitt eftir liggja.

31.03.2008
Það er gaman að vera sauðfjárbóndi í sinni sveit.  Þó er það ekki alltaf tekið út með sældinni.  Kíkið á nýjan pistil um sauðféð.

29.03.2008

Farið í rekstur....nr. 2 í mars.  Lögðum af stað í ágætis veðri frá Skriðu en lentum í vetrartíð þegar komið var yfir á Bægisá.  En leiðin er stutt og höfðu menn og hestar bara gott af því að reyna sig aðeins við snjó og kulda.

20.03.2008

Rakaðir smákroppar!  Folöldin rökuð og gerð fín.  Þarna er Glódís, Glóðars (Reykjavík) dóttir í rakstri.  Hún er unda Orradótturinni Álfadísi frá Ásmundarstöðum og er því skyldleikaræktuð út af Orra í báðar ættir.

19.03.2008

Smellið á auglýsinguna til að sjá hana stærri.
Stóðhesturinn Drangur frá Hjallanesi I verður til afnota í Fornhaga II, sumar 2008.  Drangur er á fjórða vetur, brúnskjóttur, blesóttur.  Hann er undan Roða frá Múla og Halla-Skjónu frá Akureyri.  Alsystir Drangs er Atley frá Reykjavík, klárhryssa með 8,25 í aðaleinkunn (8,33 fyrir hæfileika, fjórar 9,0 og fjórar 8,5).  Drangur er spennandi hestur með mikinn fótaburð.  Verð á tolli er 45.000,- m.vsk. og gefur Arnar Sigfússon allar nánari uppl. um notkunina á Drangi.  Senda fyrirspurn vegna notkunar Drangs

14.03.2008

Þarna er stoltið okkar hún Brynja frá Árbæ.  Brynja er fædd 2004, er í tamningu hjá Erlingi Erlingssyni í Langholti og nú um helgina fóru hluthafarnir (allir fjórir) að skoða hana.  Það er vægt til orða tekið að segja að við höfum verið ánægð með hvernig gengur hjá Erlingi með hana.  Frábær hryssa.  Brynja er undan Bringu frá Feti og Leikni frá Vakurstöðum.

14.03.2006

Fórum í "Maura"þjálfunarbúðirnar um helgina.  Björn Einarsson á Hvanneyri hefur nú með Maurinn að gera og heldur utan um þjálfunina.  Gengur bara nokkuð vel, klárinn farinn að rekja aðeins úr sér og allar gangtegundir opnar. 
 

09.03.2008

Ísak allur að koma til.  Eftir langar og árangurslitlar undanfarnar vikur er loksins að rofa aðeins til í þjálfuninni á honum Ísaki.  Nú eru fimm gangtegundir nokkuð klárar (mis sterkar þó!) en viljinn lítill og því erfitt að vinna í höfuðburðar- og beislismálum.  Knapamerkjavinnan nýtist hins vegar afar vel og nýja járningin styður líka við þannig að vonandi fer eitthvað að ganga í plúsáttina framundan.  Þessi hestur er hins vegar afar þægur og verður skemmtilegur þegar hann nær valdi á gangi.  Er þetta ekki bara spurning um þolinmæði?  Ég held það....

07.03.2008
Um liðna helgi var mikið teiti í Skriðu, þar sem Þór og Sigga vígðu nýtt hesthús.  Kíkið á heimasíðuna þeirra og sjáið myndir af mannlífi og húsakosti.

06.03.2008
Járnað og járnað.....og lendir mest á nágrannanum, Þór í SkriðuÍsak settur á spariskóna (plast og kítti) og Kolskeggur Adamssonur járnaður í fyrradag.  Það er sem sagt mikið rennirí í þessu litla hesthúsi og varla kólnaðar stíurnar þegar nýtt er komið inn.  Það er reyndar bara skemmtilegt!  Viðbót, gráskjótt 5v. hryssa frá Flatatungu stoppaði stutt í hesthúsinu og flutti lögheimilið sitt í Skriðu sl. laugardag.  Loki fer til nýrra heimkynna á sunnudag og þá verður Börkur tekinn inn.  Þá eigum við von á þremur nýjum hryssum á næstunni.....segjum frá því síðar :o)

24.02.2008

Traffík Hróðursdóttir og Hörkudóttir fór í Skagafjörðinn til Mette Mannseth í frekari tamningu.  Traffík fór í gegnum frumtamningaverkefni á Hólum í haust og var þar í 10 vikur.  Eftir góða hvíld og át er hún nú klár í slaginn á ný.  Að sjálfsögðu er stefnt á að sýna þessa hryssu í vor en Harka móðir hennar komst á LM þegar hún var 4v.  Verður maður ekki að vera fullur bjartsýni á svona stórmótaári? 

04.02.2008
Kládíus frá Skriðu, móvindóttur Molasonur, mjög hágengur og flottur.
Fórum og mynduðum söluhross í Skriðu í gær.  Kíkið endilega á síðuna þeirra og sjáið flott Molaafkvæmi, svífandi hágeng og gráa hryssu u. Adam frá Ásmundarstöðum. Bein slóð á sölusíðuna í Skriðu.

31.01.2008
Knapamerkin hefjast aftur í dag.  Húsfrúin hefur sem sagt stundað þetta merka nám ásamt kynsystrum sínum á Dalvík og nú skal hafist handa við verklegan hluta nr. 2 sem þýðir að nú þegar hefur hún lokið 1. stigi (verklegu og bóklegu) og bóklegum hluta annars stigs.  Að sjálfsögðu verður það hvíti gæðingurinn Ísak frá Barkarstöðum sem verður hennar hægri hönd þetta sinnið. 

26.01.2008
Dagurinn sem Anna tók Ísak í "nefið"!
Í dag var óveður, rok og rigning og ekki hundi út sigandi.  Til að láta nú ekki sunnudaginn fara til spillis var ráðist í ýmiss nauðsynja "inni" verk.  Það er eins gott að veðrið lagist svo að ekki komi til frekari klippinga, tannraspana og hárgreiðslu...allavegna þyrfti þá fleiri "þolendur" til verksins....

Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.


Raspað!

Rakað!

Rakað meira....

Ormalyf!

Ævar kominn á bak..

Búið að skipta faxi...

...líka á Loka...

Vinir? 

Þetta var sem sagt dagurinn okkar Ísaks :o)  Annars...loksins komnir hestar á járn eftir langa mæðu.  Traffík, Ísak og Loki komin á skeifur og Maur fór til Bjössa Einars í gær til frekari tamningar. 

17.01.2008

Opna Bautamótið í tölti þann 16. febrúar n.k.  Smellið á myndina til að sjá hana stærri.

12.01.2008

Folaldasýning hjá Framfara.  Mættum með einn fulltrúa frá Fornhagabúinu, Grýlu frá Fornhaga II, undan Svölu frá Hurðarbaki og Hnokka frá Þúfum.  Grýla varð í 3. sæti í flokki merfolalda og skipti einnig um eigendur í ferðinni. 

16.12.2007

Maur frá Fornhaga II (3v.) sóttur í Hóla.  Þar hefur hann verið í tamningu hjá Ísólfi Þórissyni, reiðkennara, undanfarinn einn og hálfan mánuð eða svo.

01.12.2007
Gefið út fyrstu rúlluna á þessum vetri.

Við gefum hrossunum eina rúllu í senn og rúllum úr henni, þá komast allir að heyinu í einu...bæði stórir, smáir, gamlir og ungir.  Folöldin ganga undir mæðrum sínum í vetur enda allt hryssur.

Hrossin kunna líka vel að meta steinefnin og nýta sér óspart að hafa fullan aðgang að slíku.  Þarna er svo líka myndir af þeim systrum, fæddum í sumar, Gloríu (Flóardóttur) og Grafík (Hörkudóttur), báðar undan Asa frá Kálfholti. 

24.11.2007

Hróðurs og  Hörkudóttirin okkar hún Traffík 3v. kom heim úr tamningunni á Hólum.  Það var Húnvetningurinn Gerður Rósa Sigurðardóttir sem tamdi hryssuna í 10 vikur og gekk vel.  Traffík er þæg og þjál og er nú komin í hvíld heima fram á nýtt ár.  Arnar kom með Traffík nánst inn í forstofu til að hitta Ævar en honum fannst mikið til koma hvað hún var þæg og góð.  Að launum fékk hún brauðbita og með það fór hún út í stóðið.

11.11.2007

Sóttum foaldshryssurnar niður á bakka og komum með heim.  Komnar heim á tún og tryppin sett saman við.  Það var vetrarlegur dagur þegar við sóttum hryssurnar enda komin miður nóvember.

08.10.2007

Nýr á bænum!  Ekki Arnar...heldur hann Kolskeggur frá Kambi sem er 6v. sonur Adams frá Ásmundarstöðum (8.36) og Íru frá Syðra-Skörðugili (Ae.8.08 og 8.35 fyrir hæfileika).  Spennandi hestur, faxprúður og myndarlegur.  ÞAð var farið að rökkva heldur mikið þegar hann kom með bílnum að sunnan... og myndin tekin....en það eiga ábyggilega eftir að koma fleiri "bjartari" myndir síðar.

07.10.2007

Kíktum í Þverárrétt í Eyjafirði.  Sólskin og fallegt veður og ró yfir mönnum og hestum.

23.09.2007
Harka, Grafík Asadóttir (Kálfholti) og Grýla Hnokkadóttir (Þúfum).
Sjö hryssum haldið þetta sumarið.  Búið að sóna fjórar af þeim og þær hafa allar verið staðfestar með fyli.  Þrjár hryssur fóru undir Maur frá Fornhaga II og verða ekki sónaðar, þær Svala frá Hurðarbaki, Doppa frá Tindum og Hrönn frá Tungu (lánshryssa).  Hinar eru Harka frá Akureyri (1v.) sem fór undir Gígjar frá Auðsholtshjáleigu, Fló frá Akureyri og Gyðja frá Þingnesi (lánshryssa) sem fóru undir Hóf frá Varmalæk og síðan Álfadís frá Ásmundarstöðum (u. Orra) sem fór undir Mola frá Skriðu.

17.09.2007
Brynja farin í tamningu til Erlings Erlingssonar.

13.09.2007
Snjór og slydda.  Fjallið alhvítt og göngur um komandi helgi.  Álfadís var sónuð fengin við Mola frá Skriðu.

06.09.2007
Traffík í Hóla. 

20.08.2007
Maur tekinn úr hólfinu frá hryssunum og lánshryssan sótt undir Hóf (sónuð fengin við honum).

15.08.2007
Harka kom heim sónuð fengin við Gígjari frá Auðsholtshjáleigu.

05.08.2007
Álfadís fór undir Mola frá Skriðu.

30.07.2007
Auðunn með þær Fló og Gyðju í sólinni í Fornhaga i gær.

29.07.2007

Vinir í raun.  Þarna knúsast þeir félagar Auðunn Orri og Hálfdán frá Hofi.  Hálfdán er 2v. moldskjóttur og er algerlega hvers manns hugljúfi.  Hálfdán er stór, fallegur og mikill karakter með afar trausta lund.

27.07.2007
Hófur 4v. í kynbótadómi á Dalvík í vor.
Fló kom heim sónuð fengin við Hóf frá Varmalæk.

23.07.2007
Gígjar frá Auðsholtshjáleigu - tekur við hryssum frá 26. júlí nk.  Sjá nánar hér.

22.07.2007
Álfadís u. Orra frá Þúfu með Glódísi u. Glóðari frá Reykjavík.
t.h. Glódís og Álfadís.  Fló og Gloría t.v.
Gyðja frá Króki 1v. u. Krafti frá Strönd.

Bættist í hópinn - 3 hryssur.  Nýjar á búinu eru:
Álfadís frá Ásmundarstöðum 16v. (7,78) F. Orri frá Þúfu
Gyðja frá Króki - 1v. svartskjótt u. Álfadís og Krafti frá Stönd II (B.8,05) FF. Kjarkur frá Egilsstaðabæ
Glódís frá Króki - 0v. rauð u. Álfadís og Glóðari frá Reykjavík (8,34)

19.07.2007
Kolur frá Syðri-Ey fór í tamningu í dag til Tona og Ingu í Syðra-Holti. 

17.07.2007
Héldum Hrönn frá Tungu (lánshryssa) undir Maur frá Fornhaga II.

13.07.2007
Til sölu Straumur frá Heiði.  Sjá nánar undir Hross til sölu  - S E L D U R

13.07.2007
Kíkið á nýopnaða sölusíðu Famfara sem er eins og nafnið gefur til kynna félagasamtök hestamanna sem ætla sér ekkert annað en framfarir í sinni hrossarækt.  Þar er meðal annars hægt að kaupa veturgamlan Hróðursson, ógeltan og fleira er væntanlegt á næstunni.

12.07.2007

Tveir nýjir hestar í Fornhagahjörðinni.  Það eru þeir Straumur frá Heiði 6v. rauðblesóttur og Ísak frá Barkarstöðum sem einnig er 6v.  Ísak er hvítur og það er gaman að fá hvítan fola í hópinn.  Þá er nú líkast til hægt að syngja "Þú komst í hlaði á hvítum hesti" og allt það.  Straumur er góður og velgengur reiðhestur sem hentar beiðum hópi reiðmanna en Ísak er styttra á veg kominn en fallegur þægur og hreyfingamikill.  Straumur er undan Furu frá Heiði (9,0 fyrir tölt) sem er fyrstuverðlauna hryssa með 8,26 í aðaleinkunn og faðir hans er Þjarkur frá Kjarri (9,5 fyrir tölt).  Það standa því að honum mikil töltgen og reiðhestskostir.  Straumur er til sölu en áhugasamir geta haft samband við Arnar í síma 893-1579 vegna hans.

12.07.2007
Dagskrá og tímasetningar á Ísl.mótinu á Dalvík sem nú stendur yfir.

11.07.2007

Fórum í Litlu-Brekku að mynda söluhross.  Þar á bæ er til nóg af góðum hrossum, kynbóta og keppnishrossum sem og efnilegum tryppum og unghryssum.  Kíkið á sölusíðuna þeirra á slóðinni http://www.litlabrekka.is/hross_til_solu.htm.  Myndin hér að ofan er af Snerpu frá Litlu-Brekku.  Frábær alhliða reiðhryssa sem ljósmyndarinn fékk aðeins að prufa.  Mæli með henni fyrir alla sem vilja eiga úrvalsgott reiðhross sem er í senn þægt, þjált og skemmtilegt...og ekki spillir að hún er mjög vel ættuð.

09.07.2007
Fyrri slætti lokið.  Búið að rúlla og því orðið klárt heyið fyrir útiganginn næsta vetur.  Sláum eitthvað upp fyrir kindurnar í ágúst eða svo.

07.07.2007
Giftingadagurinn í dag.  Þá meina ég að 100 pör giftu sig á Íslandi í dag...var sagt í fréttum.  Við ætlum að eiga brúðkaupið inni og þess í stað fórum við í önnur nauðsynjaverk svo sem að fara með hryssu undir Hóf frá Varmalæk og eins komu Skriðubændur og slógu túnin hjá okkur. 

24.06.2007
Skotta frá Yzta-Gerði kom undir Maur frá Fornhaga II.  Skottu þekkja margir heimamenn sem og aðrir en hún var keppnishryssa Birgis Árnasonar á Akureyri til margra ára og vakti eftirtekt fyrir fótaburð.  Skotta er 24v. og er verið að gera tilraun með að koma í hana einu folaldi.

23.06.2007
Doppa frá Tindum kominn undir Maur.  Nú á að láta á það reyna hve sterk skjóttu genin eru í henni en gárungarnir segja hana arfhreina á skjótt.  Sjáum til að ári hvað kemur úr þessari blöndu.

18.06.2007
Fórum með Fló frá Akureyri undir Hóf frá Varmalæk í dag.  Einnig fór Spá til nýrra eigenda suður yfir heiðar.

17.06.2007
Fórum með Hörku frá Akureyri undir Gígjar frá Auðsholtshjáleigu.  Á morgun fer Fló frá Akureyri undir Hóf frá Varmalæk, nýstirnið 4. undan Hróðri frá Refsstöðum og Kengálu frá Varmalæk, sem sló í gegn á kynbótasýningu á Dalvík í vikunni. 

14.06.2007

Spá og Toni í sólinni á Dalvík í dag.
Spá hækkaði fyrir tölt í yfirlitssýningu í dag.  Fór í 8,5 og þar með hlaut hún 8,19 fyrir kosti og 8,18 í aðaleinkunn.  Spá er seld.

IS2000265310 Spá frá Staðartungu
Litur: 7500 Móálóttur,mósóttur/milli- einlitt 
Ræktandi:
Eigandi: Anna Guðrún Grétarsdóttir
F: IS1989184551 Þorri frá Þúfu
Ff: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Fm: IS1986284551 Hviða frá Þúfu
M: IS1991286643 Vænting (Blíða) frá Ási 1
Mf: IS1985186021 Óðinn frá Ási 1
Mm: IS19AA286914 Björt frá Ási 1
Mál: 142 - 139 - 64 - 142 - 27,0 - 17,0
Hófamál: Vfr: 9,1 - Va: 8,7
Sköpulag: 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 7,5 - 8,0 - 8,5 - 9,0 = 8,16
Hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 6,5 = 8,19
Aðaleinkunn: 8,18
Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5     
Sýnandi: Anton Páll Níelsson
 

12.06.2007
Góður dagur!  Spá frá Staðartungu fór í kynbótadóm á Dalvík í dag.  Hlaut í aðaleinkunn 8,11. Þessi hryssa hefur verið í þjálfun í vetur hjá Ingu og Tona í Syðra-Holti og fá þau lof fyrir frábærlega unnið verk bæði tvö. Spá hlaut eina níu - fyrir prúðleika. Yfirlitssýning á fimmtudag þannig að eftir það fáum við endanlegan dóm.  Til gamans má geta þess að bróðir Spáar, Fróði frá Staðartungu 5v. undan Hágangi frá Narfastöðum, var sýndur á dögunum á Sauðárkróki og hlaut þá í aðaleinkunn 8,18 klárhestur.  Hann hlaut 9,0 fyrir tölt, vilja og geðslag og fyrir fegurð í reið.
Fróði frá Staðartungu

11.06.2007
Lengi býr að fyrstu gerð....
Þau eru spök tryppin...það vantar ekki.  Þarna er Anna að heilsa Hálfdáni frá Hofi (2v.) moldskjóttum höfðingja. Þessi hestur er magnaður í alla staði.  Rólegur, traustur, stór og mjög fallegur með frábæran lit í bónus. Á hinni myndinni er Traffík frá Fornhaga II undan Hróðri frá Refsstöðum og fyrstuverðlauna hryssunni okkar henni Hörku.  Traffík er 3v. efnishryssa, traust og þæg.

08.06.2006
Doppa frá Tindum 5v.
Sóttum loksins reiðhrossin í gær.  Í glampandi sólskini fram á kvöld vorum við við hrossasmölun og settum reiðhrossin heim við skála.  Bruni, Sómi, Kolur og Doppa.  Spurning með Börk 4v. hvort hann verði ekki eitthvað tekinn líka.  Svo kemur Spá væntanlega til okkar eftir kynbótasýningu en hún er skráð í kynbótadóm á Dalvík í næstu viku.

07.06.2007

Hér er mættur Titill frá Akureyri.  Þessi hestur er fæddur okkur og mun vera orðinn 13 vetra eða svo. Hann er sammæðra kynbótahryssunum okkar þeim Hörku og Fló en aftur undan Teig frá Húsatóftum.  Þessi mynd er tekin af honum nýverið í Ölpunum (smellið á stærri myndina til að sjá landslagið) og Sandra Marin sendi okkur hana en vinkona hennar á vinkonu sem keypti hann nýverið.  Svolítið langsótt en skilaði sér samt heim á frón til föðurhúsa Titils.  Gaman fyrir ræktandann Arnar. 

07.06.2007
Maur frá Fornhaga II - F. Rökkvi frá Hárlaugsstöðum M. Fló frá Akureyri.
Umsögn um Maur - ungfolaskoðun maí 2007

05.06.2007

Svala sett undir Maur frá Fornhaga II.

04.06.2007
Harka með sitt merfolald (nýkastað) u. Asa frá Kálfholti.
Fló með sitt merfolald u. Asa frá Kálfholti.
Svala með Grýlu u. Hnokka frá Þúfum.
Þá eru öll folöld komin í Fornhaga II.  Það köstuðu 4 hryssur, 3 af þeim á okkar vegum.  Við fengum sem sagt þrjú folöld - allt hryssur og allar rauðar en tvær þeirra með stjörnu!  Það er sem sagt eitthvert kvenngenaár núna í Fornhaga því öll lömbin (8 talsins) sem fæddust eru gimbrar og folöldin merar.  Sniðugt.

04.06.2007
Harka kastaði í nótt rauðri hryssu undan Asa frá Kálfholti.

02.06.2007

Kíktum við á Tyrfingsstöðum í dag og sáum folöld undan Maur frá Fornhaga II.  Þau voru mjög upplitsgóð og flott. Fædd eru 5 folöld, þrír rauðblesóttir hestar og tvær brúnar hryssur. 

24.05.2007
Fló kastaði í dag rauðstjörnóttri hryssu undan Asa frá Kálfholti.

23.05.2007
Þreyttar mæðgur í morgunsárið.
Fyrsta folald ársins fæddist í gær.  Það var hún Grýla frá Fornhaga II, undan Svölu frá Hurðarbaki og Hnokka frá Þúfum (4v. u. Hróðri frá Refsstöðum og Lygnu frá Stangarholti).  Svala ætlar að vera sparsöm á litina við okkur þegar fæðast hryssur en þessi hryssa er rauðhalastjörnótt.

21.05.2007
mynd dagsins....

14.05.2007

Opna Norðurlandsmótið 26. og 27. maí á Hlíðarholtsvelli....smellið á myndina til að sjá hana stærri.

03.05.2007

Rökkvasonurinn Maur frá Fornhaga II mætti í ungfolaskoðun í gær að Björgum í Hörgárdal.  Þar tóku þeir Eyþór Einarsson og Þorvaldur Kristjánsson út nokkra fola en alls mættu um þrjátíu ungfolar til skoðunar.  Umsögn um hvern fola er gefin út og send eigendum hestanna síðar.  Eitthvað mátti heyra á þeim köppum að hann (Maur) myndi skora mjög hátt í samræmi og það er vel.

25.04.2007
Kíkið á viðburði á Norðurlandi næstu vikna og mánaða hér.

24.04.2007

Hesta-Bjarni mætti á svæðið í sýningunni "Tekið til kostanna" á Sauðárkróki.  Þarna er Anton Níelsson "Hesta-Bjarni" á hryssunni Auði frá Hofi.  Sjá nánar á síðunni hjá Ingu og Tona.

23.04.2007

Fórum á skemmtilega kennslusýningu hjá Hólaskóla en sýningin fór fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki, laugardaginn 21. apríl sl.  Á myndinni er Barbara Wenzl að sýna afturfótasnúning á hestinum Tenór frá Tunguhlíð.  Tenór er undan Smára frá Skagaströnd og undan Tenóri eigum við eina rauðskjótta hryssu, hana Huldu frá Brúnastöðum.

28.03.2007
Nýjasta nýtt!  Fann vettvang til að skjóta inn myndum sem mér finnast fallegar eða skemmtilegar.  Setti skærgræna krækju hér til vinstri sem Mynd dagsins.  Get ekki lofað að þarna verðir nýjar myndir á hverjum degi en örugglega fleiri en ein á mánuði.... :o)

26.03.2007
Kíkið inn á nýja síðu um metféð okkar.

05.03.2007

Kraftur og Agnar    Gígjar og Þórður    Leiknir og Valdimar
Fórum á Stjörnutölt í gær.  Mótið gekk vel í alla staði og meðal annars sem var í boði voru kynningar á stóðhestum.  Þar komu m.a. fram þessir kappar hér að ofan: Kraftur frá Efri-Þverá, Gígjar frá Auðsholtshjáleigu og Leiknir frá Vakurstöðum.  Allir mjög góðir á sinn hátt en þó reyndist ísinn Gígjari erfiðastur.  Leiknir alveg kattfimur og flottur og Kraftur þvílíkur getuhestur á öllum gangi.

19.03.2007
Sól í heiði og fagur dagur (eftir óveður gærdagsins).
Nú verður tekið til við heimasíðugerð og þeir sem hafa áhuga á slíku geta haft samband.  Hef nýverið lokið við síðu fyrir þau Vigni og Jónínu í Litlu-Brekku, www.litlabrekka.is
Endilega kíkið í heimsókn á síðuna þeirra.
Áhugasamir hafi samband við Önnu Guðrúnu í síma 462-2101 eða í netfang fornhagi@fornhagi.is

15.mars.2007
Spor í rétta átt.....
Mennt er máttur.  Nú er komið að því að skrafa í skruddum og máta hnakkinn.  Eftir mikla ládeyðu í reiðmennskunni hefur húsfrúin á bænum drifið sig í "hagnýtt nám" og keyrir nú við annan mann til Dalvíkur til að nema og taka próf í Knapamerkjakerfinu I og II stig.  Þar kennir Inga María Stefánsdóttir, reiðkennari, fjölda kvenna og fyrir klíkuskap og skyldleika bauðst mér að fljóta með Hringskonum á Dalvík.  Síðan er stefnan sett á stig III þegar kennsla býðst (fyrir okkur eldri) en vonandi verður boðið upp á það í haust í nýrri reiðhöll á Akureyri.  Það er nefnilega þannig eins og ein konan á námskeiðinu komst svo vel að orði.  "Maður er búinn að fara á fullt af reiðnámskeiðum en kann samt ekkert!"  Þarna hefur maður þó eitthvert viðmið og próf upp á vasann.  Frábært fyrir áhugafólk - allir að drífa sig í knapamerkin við næsta hentuga tækifæri.

14.03.2007

Stjörnutölt 2007 - 24. mars n.k.  Smellið á myndina til að sjá auglýsinguna betur.

12.03.2007
Freyðir frá Hafsteinsstöðum og Sigurður Sigurðarson
Auður frá Hofi og Anton Níelsson.
Mikil myndahelgi búin.  Fórum á ísmót á Svínavatni og tókum vel á annað þúsund myndir!  Eins og gefur að skilja verða þær ekki settar hér inn....alla vegana aldrei allar :o)  En þeir sem hafa áhuga á að fá myndir af sér og sínum á mótinu geta haft samband við okkur á fornhagi@fornhagi.is

03.03.2007
Mývatn Open í dag.  Hér má sjá úrslitin.  Tók helling af myndum og eins og venjulega er hægt að hafa samband við mig í netfang fonrhagi@fornhagi.is til að fá nánari upplýsingar um þær.

16.02.2007
Rásröð á opna Bautamótið.

10.02.2007
Fyrsta mót vetrarins hjá Létti fór fram á Leirutjörn.  Það var töltkeppni á ís.  Sjá nánar frá því hér.

05.02.2007

Þá er Spá frá Staðartungu farin í frekari þjálfun og tamningu til Ingu og Tona í Syðra-Holt.  Stefnan er sett á kynbótadóm í vor.

04.02.2007

Þá er að bresta á Opna Bautamótið í tölti.  Auglýsingin farin í loftið og farið að taka við skráningum.  Smellið hér til að skoða auglýsinguna um mótið.  Hér er hægt að skrá sig til leiks.

02.02.2007
Jæja...þá erum við flutt tímabundið í Skriðu í Hörgárdal.  Eftir að hafa verið sambandslaus við netheima nú í viku er komið beint samband í gegnum andrúmsloftið við Emax og vonandi á það eftir að skapa okkur góð netskilyrði.  Hvað um það - breyttum aðstæðum fylgir alltaf nýtt fyrirkomulag og það er nú bara vel.

23.01.2007
Soldán frá Brúnastöðum.   Börkur frá Brúnastöðum.
Ævar Ottó (2006) eignaðist sinn fyrsta hest á dögunum.  Sá heitir Soldán frá Brúnastöðum og er einnig fæddur 2006.  Rauðskjóttur að lit og Auðunn á bróður hans, líka rauðskjóttan, undan sömu hryssu.  Sá heitir Börkur frá Brúnastöðum og er á fjórða vetur.  Gaman fyrir þá að eiga svona "sett".  Börkur er sérlega skapgóður og traustur hestur, miðað við að vera ótaminn, og vonandi á Soldán eftir að standa honum jafnfætis í þeim kostum.

12.01.2007

Þetta er hún Brynja frá Árbæ.  Brynju keyptum við í hlutafélagi við Vigni og Jónínu í Litlu-Brekku og erum að vonast til að fá þarna ræktunarhryssu.  Brynja er fædd 2004 og eru undan Leikni frá Vakurstöðum og gæðingshryssunni Bringu frá Feti.  Fyrir þá sem ekki þekkja Bringu þá er hún hæst dæmda afkvæmi Orra frá Þúfu en hún er með 8,66 í aðaleinkunn.  Hún hefur hlotið 9,01 fyrir hæfileika sem skiptist þannig:
Tölt: 9,5 - Brokk: 9,0 - Skeið: 7,0 - Stökk: 9,5 - Vilji og geð: 9,5 - Feg í reið: 9,5 - Fet: 7,5 = 9,01
(hægt tölt: 9,0).  Bringa stóð efst í flokki 6v. hryssna á LM í Reykjavík 2000.

02.01.2007
Fló og Auðunn 29. des. sl.  Snjólaust með öllu og 5 stiga hiti.
Gleðilegt ár kæru netverjar.  Það hefur verið rólegt í hestamennskunni fram til þessa.  Vonandi förum við að spýta í og bæta um betur.  Eitthvað er þó í bígerð eins og að selja eina brúna þæga faxprúða hryssu og að setja aðra móálótta í tamningu og þjálfun.  Þannig að það fer vonandi að draga til tíðinda í hestaheiminum í Fornhaga II.

11.12.2006
Kíkið á myndir og skoðið myndagalleríin okkar.

30.11.2006
Raunir sauðfjárbænda....

19.11.2006

Mikill snjór í Fornhaga.  Það er búinn að vera mikill vetur hjá okkur undan farna daga.  Hörku frost og ofankoma...og þá er nú fínt að gera bara snjóhús og kíkja á stóðhrossin. 

11.11.2006

Gefið út í fyrsta sinn í dag.  Arnar og Siggi í Brakanda fóru með rúllu handa stóðhestunum, þeim Sámi frá Litlu-Brekku og Maur frá Fornhaga II, en þeir voru sendingunni fegnir eftir undangengið veður.  Spáin er áfram slæm og má segja að dagurinn í dag hafi verið lognið á eftir og undan storminum!

10.11.2006

Óveður....stormur og snjókoma.

07.11.2006
Nýr vefur lítur dagsins ljós.  Fengum mjög góð viðbrögð við fyrri vefsíðu svo að við ákváðum að stíga skrefið til fulls og kaupa lénið www.fornhagi.is og netvæðast í eigin nafni.  Amen. 

Smellið hér til að skoða eldri fréttir frá 2006
 

Vefhönnun: Anna Guðrún Grétarsdóttir
Senda okkur póst

  Hrossaræktarbúið Fornhagi II, 601 Akureyri, Ísland -  Tel. +354 4622101