Grafík er stórt og öflugt
tryppi með mikinn fótaburð, framgrip og skrefar vel.
Grafík er mikið forystuhross í sér og það er
skemmtilegt. Hún er skapmikil og fljót að taka tilsögn. Nú reynir á Hörku
sem kynbótahryssu að skila okkur góðri hryssu þarna þar
sem Traffík, eldri systir
hennar, varð úr leik aðeins 4v. gömul. Grafík er
afkvæmi Hörku númer tvö.
Hér fyrir ofan má sjá Grafík nýkastaða og næsta mynd er frá 2007.
Innimyndirnar eru svo
síðan í ágúst 2010 þegar Grafík
var tekin til fortamningar. Myndirnar hér fyrir neðan
eru teknar af Grafík þegar hún fór í frumtamingu haustið
2010. Efnileg hryssa með flottan fótaburð.
Smellið á síðuna hennar Hörku,
móður Grafíkur, til að sjá myndir af systkinum hennar.