12.02.2010
Auðunn og Ævar skoða ærnar í desember.
Í kvöld kom Gunnar í Sandfellshaga til okkar og taldi í ánum.
Það kom vel út, engin geld, 9 af 10 eru tvílembdar og ein
þrímlembd. Það eru tvö lömb umfram það sem við látum ganga
með ánum þannig að það verður því einhver tilfærsla í vor ef öll
lömbin lifa. Þá hefur litla skottið hún Dimma Lambásdóttir
'09 líklega fengið við sæðishrútnum honum Dökkva (miðað við
stærð fóstranna) og tvær fengnar við Lambás sjálfum, 5 fengu við
Stórakoll hans Guðmundar í Garðshorni og tvær við Spotta
lambhrútnum sem við notuðum. Vorið ætti því að færa okkur
21 lamb úr þessum fáu rollum.
24.01.2010
Í dag flutti Spotti heimili sitt frá Fornhaga II yfir í
Stóra-Dunhaga. Spotti sem var svona uppbeiðslishrútur hjá
okkur, hafði lokið sínu verki á Fornhagabúinu og eftir að hafa
haft allan sinn tíma í ánum hjá okkur, gáfum við Árna og Boggu
hann til hverslags nytja. Það fækkaði því um eitt á fóðrum
í dag :o)
02.12.2009
Lambás "Dýri" frá Sveinungsvík.
"Fyrsti í fangi" var í dag. Tvær af ám búsins voru leiddar
undir gullmolann Lambás frá Sveinungsvík. Þarna á tæplega
við að tala um gullklump, því svo fínlegur er hann karlinn.
Benni í Auðbrekku kom með sínar ær til okkar og voru þessar
tilhleypingar því samvinnuverkefni tveggja
"stórsauðfjárræktarbúa" í sveitinni. Þetta var engu líkara
en um einn dýrasta stóðhest landsins væri um að ræða...sérsmíðað
faratæki, svíta á Syðri-Bægisá og nafnið á karlinum á hurðinni.
Skemmtilegt :o)
16.11.2009
Tókum ærnar inn í gær en áður voru komin á hús Spotti lambhrútur
og Dimma lambadrottning. Spotti fékk líf fyrir það eitt að mæta
síðastur heim að þessu hausti og á að gagnast ánum sem ekki
verða settar í sérstakt ræktunarbótaferli. Árni í Stóra-Dunhaga kom og rúði í dag
og svampaðar tvær, þær Synd og Skömm sem fara undir Lambás þann
2. des. n.k. Við ætlum að prófa að láta sæða Dimmu (þó ung sé)
og sjá hvort við náum nýju blóði í þann stofn. Annars er
skýrsluhaldinu lokið, meðalvigtin 17,4 kg. eftir að smádilkunum
var lógað, 2,33 lömb á á, sem flestum þykir gott nema okkur sem
höfum ekkert með svo mikið af lömbum að gera. Þrjú lömb og ein
rolla farin í reyk og því fer að syttast í jólakjetið.
Tvær rollur voru felldar þetta haustið, þær Svarthvít og Gríma
og því fækkaði verulega í mislitastofninum en nú eru einungis
mislitar þær mæðgur Skömm og Dimma.
22.09.2009

Hlutirnir gerast hratt í sauðfjárræktinni, ólíkt hrossunum.
Arnar byrjaði í sinni sauðfjárrækt sl. haust og nú í vor fékk
hann fyrsta ávöxt þess ræktunarstarfs. Skömm '08 hans bar
tveimur gimbrum, svartri og gulkolóttri, við Lambás frá
Sveinungsvík (hundraðogfimmþúsundkallinn), fyrst allra áa til
þess. Sú svarta fékk að njóta móður sinnar í sumar og var sem
sagt lamb nr. eitt í Fornhaga og var strax ákveðið að hún fengi
líf að hausti, kæmi hún heim. Í dag var svo uppskeruhátíð
þegar Arnar fékk dóm á grimbrina (sem hefur hlotið nafnið Dimma)
og var heldur en ekki kátur með niðurstöðuna. Dimma hlaut
33 í vöðva, 2,2 í fitu, 4,5 fyrir lögun, 9,5 fyrir frampart,
19,0 fyrir læri og 8,0 fyrir ull! Það voru þá heldur
engar smá tölur á kerlingunni :o) Alls hlaut hún 36,5 stig sem
hlýtur að teljast verulega gott. Þar með setti hann okkur
hin langt aftur fyrir sig og verðum við nú að sýna kænsku og
reyna að klóra í bakkann að ári (sæða, sæða). Frábær dagur
fyrir Arnar og Dimmu lambadrottningu. Spurning hvort hún
þurfi hreinlega ekki að fá sér herbergi í vetur!
21.09.2009
Kollheimt í Fornhaga II.
Þá er allt komið heim og líkt og í fyrra skiluðu sér allir
hausar heim (fyrir rest). Í seinni göngum fengum við Grímu
með lömbum en hún var í Auðbrekkufjallinu og hafðist heim með
erfiðismunum þó! Skömm og Dimma voru hinsvegar komnar alla
leið yfir í Skriðu, þar fyrir ofan túngirðingu. Þær urðu
einhverra hluta eftir í seinni göngunum líka og fór Gísli
nágranni í Tungu og opnaði fyrir þeim niður á tún í Skriðu og
þangað sóttum við þær, í félagsskap við Gísla, og rákum heim í
Fornhaga.
Eftir 17 dilka er meðalvigtin 18 kg. og slátruðum við núna
þremur vikum fyrr en á síðasta ári. Eigum eftir að slátra
þrem lömbum (þar af tveim afar smáum og einu vænu).
Ein rolla fær að fara líka, Dimma sett á svo að hausafjöldinn
verður sá sami næsta vetur - 11 ær.
15.09.2009
Göngur, réttir og slátrun.
Þá eru haustverkin komin á fullt. Fyrri göngum lokið og heimtum
við frekar illa miðað við fjárfjölda. Af 11 ám vantar
okkur ennþá tvær ær með lömbum, þær Grímu og Skömm. Allar
"Strandakindurnar" okkar komu í fyrri göngum, eins og í fyrra
:o) Í gær var svo vigtað og í dag slátrað einum 17 dilkum.
Tvö smærri lömb fá að bíða seinni slátrunar en ein ærin okkar,
sem fór með tvö lömb á fjall og var einspena, hefur hætt
fljótlega að sinna sínu mjólkurhlutverki og það sást vel á
lömbunum. Hún fær því að fara til feðranna síðar í haust
um leið og lömbin. Nú er bara að bíða þess að fá eitthvað
af hausum í seinni göngum og vonandi að heimta ásetningsgimbrina
okkar, hana Dimmu Lambásdóttur, sem enn hleypur einhversstaðar
um fjöllin ásamt móður sinni henni Skömm.
19.05.2009

Ja, blessað fólkið sem hugsar svona (sjá mynd hér að ofan). Það
er auðvitað miklu betra að kaupa kjötið í BÚÐ sem framleiðir
kjöt heldur en að lóga dýrum til að "borða" þau :o) Þessi
úrklippa hlýtur að hafa slegið í gegn í amerísku slúðurblaði.
Hún "lyktar" einhvern veginn þannig. Hvað um það, ef ekki
verða náttúruhamfarir ættu að vera fullar frystikistur af
lambakjöti í Fornhaga í haust, heimaslátruðu, og alls ekki
"keyptu" í búðinni sem "býr" til kjötið :o) Hlökkum til
haustsins.
18.05.2009
Þá lauk sauðburði í Fornhaga II í nótt. Brúða bar síðust, tveim
risastórum alhvítum lömbum, hrút og gimbur. Hefur heilt yfir
gengið vel hjá okkur en misstum þó eitt gemlingslamb og einn
þrílembing. Þrjár ær af níu voru þrílembdar og annar
gemlingurinn okkar var tvílembdur svo að nóg var af lömbununum
sem voru þó gefin til nágranna vorra í Skriðu, þ.e. tveir
þrílembingar og tvílembingur undan gemlingi. Eitt lamb fengum
við svo hjá þeim til að venja undir gemlinginn sem missti þannig
að þetta er allt eins og blómstrið eina. Allar ærnar ganga
með tvö lömb og gemlingarnir báðir með eitt lamb. Það eru þá 20
lömb sem fylgja þessum 11 ám en fæddust hjá okkur 24.
25.04.2009
Gríma bar hrút og gimbur í dag - bæði alhvít.
24.04.2009
Dásamlegur tími hafinn - sauðburður!
Skömm bar tveim gimbrum í dag - svartri og hvítkolóttri sem
væntanlega verða hyrndar þar sem báðir foreldrar eru það. Þessar
tvær gimbrar eru undan Lambás frá Sveinungsvík. Sú kolótta fékk
nýtt heimili og "fóstru" í Skriðu enda algerlega upprunin þaðan.
Skömm er sem sagt frá Skriðu og þangað fór hún einnig undir
Lambás og gimbrin kolótta er því nánast komin "heim".
05.04.2009

Klipptum klaufir á kindunum og það mátti nú alls ekki seinna
vera því ræflarnir voru orðnar ansi vaxnar. Svarthvít var svona
pínu fyrirkvíðanlegt verkefni þar sem hún er allra kinda
brjáluðust.. en viti menn! Hún stóð eins og stytta og
leyfði mér að klippa sig allan hringinn án þess að hjóla í mig
margsinnis (en það er svona vanalegra). Hún er hins vegar
með slæma ígerð í júgranu og það er því höfuðverkur þessa
sauðburðar að finna lömbunum hennar nýjar mæður en hún er
þrílembd. En svona til að vera ekki alveg með geislabaug
hjólaði hún í Ævar, þar sem hann stóð í garðanum, og var lítt
kátur með hennar háttarlag. Bólusettum svo gemlingana
(seinni umferð) og bárum hálm í króna þannig að nú er allt í
sóma og blóma í fjármálunum.
24.03.2009
Bólusett! Það er brjálað að gera í fjármálunum hjá okkur með
allar þessar 11 kindur! Anna, Auðunn og Ævar brustu í það
að bólusetja ærnar bæði með lambablóðsóttarlyfi og seleni.
Ævar (3 ára) skældi mest allan tímann og stundi á milli
ekkasoganna: "Ekki stinga mína kind"....! En hans kind
slapp ekki frekar en aðrar og allar fengu þær sinn skammt af
bóluefnunum.
23.03.2009
Rúið! Og enn og einu sinni kom Þór í Skriðu og strippaði snoðið
af ærstofninum. Þessar síður en svo spöku ær í Fornhaga II
eru ekki í neinu uppáhaldi hjá honum þegar kemur að rúningi og
spurning hvort við þurfum að fara að beita svona
"bónusgreiðslum" til að lokka hann til starfans. Hvað um það,
hann lét sig hafa það eitt vorið enn að rýja þessar elskur sem
samkvæmt venjunni börðust um á hæl og hnakka og gáfu hvergi
eftir. "Fé er jafnan fóstra líkt" og í þessu tilviki er
það alveg á hreinu að þessar ær tilheyra húsfrúnni á bænum :o)
enda hefur hún það að mottói að það sem maður getur ekki gert
með hugvitinu og aflinu einu saman er gott að bæta þráanum
við....þá kemur þetta á endanum.
22.03.2009
Svarthvít með lömbin sín tvö vorið 2008.
Þrílemburnar okkar þjár fengu sér herbergi í dag. Það eru þær
Svarthvít, Prýði og Pæja sem eiga von á alls 9 lömbum og því
ákváðum við að gera vel við þær og setja þær í sér spil.
Þetta var nú hugsað svo að þær hefðu meira pláss, meiri frið til
að éta og meira næði. En við vorum varla búin að setja
spilið í króna þegar Svarthvít byrjaði að labba uppá hinum tveim
og réðist svo á Pæju og stangaði hana af öllu afli í bumbuna.
Svarthvít blessunin kann ekkert að meta þetta góðverk og þar sem
hún getur ekki haft neitt á hornum sér (enda kollótt) þá nýtur
hún þess að pynta samborgara sína í þessu fjárhagslífi eins
mikið og auðið er. Hún færði sig sem sagt einu skrefi nær
pottinum þarna í dag en sökum þess hve stórspena hún er, er hún
líklegri en aðrar ær hjá okkur til að lenda þar í haust.
Það er heldur ekki hægt að ætlast til að aðrar ær beri hana
mikið á bakinu enda hefur hún vigtað rúmlega 80 kg. tvö sl.
haust og engin léttavara.
15.02.2009
Það er gaman þegar vel gengur í kynbótastarfinu en stundum
gengur bara ofvel...eins og við fengum að vita í dag þegar
Gunnar í Sandfellshaga kom til okkar og "taldi" í ánum.
Við komum til með að fá 24 lömb úr 11 ám (þar af tveir
gemlingar) og eru þrjár þrílembdar og annar gemlingurinn
einlembdur en rest með tvö hver. Það er eiginlega svona
fjórum lömbum of mikið því best er að hafa þær bara tvílembdar
og gemsurnar litlu einlembdar. Það verður því hlaupið á
milli bæja í vor til að vita hvort hægt verði að koma umfram
lömbunum undir ær. Það má því með sanni segja að Blettur frá
Skriðu hafi markað spor sín duglega í frjósemisræktunina hjá
okkur...og við sem héldum að hann næði ekki að lemba stóru
fullorðnu ærnar en eins og þeir sem til þekkja vita...þá eru
ærnar í Fornhaga II MJÖG stórar :o) og ekkert auðvelt verkefni
fyrir lambhrút endilega að gagnast þeim. Við þessa talningu kom
í ljós að eina ærin sem við létum sæða, hún Brúða, hefur
greinilega beitt upp og fengið við honum Blett sem verður til
þess að hún verður með þeim síðustu að bera.
18.01.2008
Blettur tekinn úr ánum. Fékk allan "sinn" tíma og vel það.
12.01.2009

Jæja nýtt ár framundan og nú ætti að vera komið fang í flestar
ær, hafi svo vel tekist til. Rakst á þessa skemmtilegu
upptalningu á netinu á dögunum. Leyfi ykkur að njóta:
Blóðhiti sauðfjár
er 39,0 ºC
Blóðhiti lamba getur verið á bilinu
38,5-40,5ºC
Æðarslög eru á bilinu
70-80 á mínútu
Tíðni öndunar er á bilinu 15-25 á mínútu
Gangmál er 48
klst (24-72)
Tími milli gangmála er 16,5 dagar (14-19)
Meðganga er 143 dagar (138-148)
12.12.2008

Á vordögum fór Fálki kynbótahrútur yfir í Dagverðartungu.
Fálki var harðsnúinn skrattakollur sem hafði þó ekkert á
hornum sér enda kollóttur eða hnýflóttur sem var nú enn síðra.
Fálki var sérdeilis mikill hlunkur, vigtaði 104 kg. veturgamall
og skilaði þungum dilkum hjá sauðfjárbændum Fornhagabúsins.
Eftir tveggja vetra notkun ákváðum við þó að nú væri nóg komið
af þess slags kynbótum og afhentum hann til nágranna vorra í
Dagverðartungu. Ekki náði Fálki þó að gera neinn óskunda í
ræktuninni þar og var í haust sendur til feðranna. Gísli í
Tungu talaði um það í upphafi (þegar hann fékk hrútskömmina) að
við myndum þá alla vegana éta hann í sameiningu, ef ekkert annað
yrði hægt að gera við gripinn. Nú þegar hér er komið við
sögu var sem sagt "ekkert annað hægt að gera við gripinn" og
fyrir skemmstu birtist Gísli með hangið læri af Fálka og færði
húsfreyjunni í Fornhaga II að gjöf. Húsfreyjan sú, sem
hefur ekki lagt það í vana sinn að éta hrúta mikið eldri en
lambsárið, fékk það resept frá Gísla að þetta skyldi hún og
hennar fólk snæða með opnum huga. Það liggur því fyrir á
jólaföstunni að snæða "Fálkakjöt" með "opnum huga" a la Gísli í
Tungu.
07.12.2008
Blettur settur í restina af ánum...
02.12.2008
Blettur, sem er kollóttur kynbótahrútur frá Skriðu, fékk að
hitta fyrstu ærnar í dag. Það voru þær Synd og Gríma en
einnig kom til hans lítil skvísa frá Skriðubúinu.
30.11.2008
Skömm fór undir hinn fræga Lambás frá Sveinungsvík í dag og fékk
fyrsta "hal".
05.11.2008
Rúið! ...alveg inn að skinni :o)
31.10.2008
Féð tekið á hús.
04.10.2008

Slátrað í dag 15 skrokkum og meðalvigtin 18,4 kg. sem er alveg
ásættanlegt. Þennan sama dag fóru félagar í Fjárræktarfélaginu
Neista (sem er okkar félag) á hrútadaginn á Raufarhöfn og keyptu
í nafni félagsins "metfé" sem er lambhrútur frá Sveinungsvík en
sá er með 10 fyrir bak og eitthvað fleira fallegt. Fyrir
hrútinn voru greiddar 105.000,- og það eitt og sér er bara
skemmtilegt. Hrúturinn verður síðan seldur út með sama
kerfi og stóðhestur, tvö tímabil og allt það.
01.10.2008
Óli
Vagns og Helgi á Syðri-Bægisá ábúðarfullir á svip.
Hrútasýning í Skriðu. Að sjálfsögðu stormuðum við öll
fjölskyldan á þennan merkis viðburð en athygli skal vakin á því
að það var fleira fólk á þessari hrútasýningu en á réttarballinu
í haust! Skemmtilegast við þetta allt var að "karlarnir" í
sveitinni sem vita ALLT um rollurassa og digurlega vaxna
kynbótahrúta, kunnu sér vart takmörk og tróðust þarna hver fyrir
framan annan, til að sjá og þukla, leggja sitt af mörkum og
þenja kassann. Þetta var eiginlega bráðfyndið en við "hin"
sem höfðum okkur minna í frammi, sáum varla einn einasta hrút
fyrir fólki og því var þessi "hrútasýning" meira svona
"hrútadómahlustun" enda var það eina leiðin til að vita hvað
fram fór í þvögunni. Hvað um það,
Skriðubændur gerðu það gott
og áttu sigurhrútana bæði í flokki lambhrúta og veturgamalla
hrúta. Til hamingju Þór og Sigga. Kíkið á heimasíðuna
þeirra undir
sauðfé til að sjá myndir frá sýningunni.
23.09.2008
Vigtað og metið.

Þetta var dagur mikilla fjármála. Vigtað og 7 gimbrum
keyrt í Skriðu til "dóms". Þar kom vel út ein stór og
mikil gimbur undan henni Brúðu og fékk hún nýtt heimilsfang
þennan sama dag en þá flutti hún til Þórs og Siggu í Skriðu.
Arnar fékk svo í staðinn hana Skömm frá Skriðu en hún er
gráflekkótt og hrynd og stangast þannig verulega á við
ræktunarstefnu frúarinnar...sem að sjálfsögðu sá um í staðin að
gefa þessari annars fallegu kind nafnið Skömm.
14.09.2008

Féð allt komið heim. Fengum allt okkar fé heim í fyrri
göngum (100% heimtur). Ein ær með tveim lömbum kom á
Reistarárrétt en annað kom allt í Þorvaldsdalsrétt. Féð ágætlega
vænt svo að við erum alveg sátt við okkar.
13.09.2008
Göngur og réttir. Við áttum dagsverk á Illagilsdal (í
seinni göngum) en þar sem Anna göngugarpur hafði ekki gengið þar
áður ákvað hún að skella sér þangað líka í fyrri göngur...bara
til að skanna svæðið :o)
Hitinn var 17°C og sól í fyrri göngunum og féð í hæstu hæðum og
langaði ekkert heim.
|
|
|
|
|
|
|
Féð rennur niður Fornhagaöxlina á leið til réttar. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Komið til byggða eftir vel heppnaðan gangnadag í sól og hita. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
...og nú nálgast skjáturnar... |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Féð á leið til réttar yfir Ytri-Tunguána. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Ævari leiddist biðin eftir safninu. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Þessi er greinilega frá Árna í Stóra-Dunhaga. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Arnar og Ævar kíkja yfir safnið í réttinni. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Hulda, Birta og Inga í Litla-Dunhaga. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Voru eingöngu konur að draga féð í réttunum? |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Jósavin í Litla-Dunhaga kátur með daginn. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Simmi á Björgum fékk kindur á réttina. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Doddi frá Þríhyrningi fær sér í svanginn á réttinni. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
09.05.2008
...og svo bar síðasta kindin.
25.04.2008
...og þá bar fyrsta kindin.
18.04.2008
Snoðið tekið - það verður ekki fært hér á prent hvað það tók
fljótt af! Líklega hefur eitthvert áður skráð hraðamet
verið slegið í þessum rúningi enda Þór rúningsmaður um það bil
að missa af úrslitaþættinum í "Bandinu hans Bubba" og hafði því
nauman tíma til verksins.
31.03.2008
Metfé með lærin í skónum.....kíkið á
sauðfjárpistil dagsins.
30.03.2008

Fálki fluttur að heiman og færði lögheimili sitt yfir í
Dagverðartungu um helgina. Þessi yfirvigtarkappi hafði þó
markað spor sín hraustlega í ræktuninni í Fornhaga því metvigt
var á lömbunum í haust, sem þó voru bara gemlingslömb og allt
tvílembingar. Gaman að sjá hvað lömbin undan honum á þessu
vori gefa okkur í haust í kg.
17.02.2008
Gríma
frá Skriðu
Afleiðing helgarinnar - versluðum með eigið metfé!
Það voru sem sagt ekki gerð hestakaup þessa helgina heldur fórum
við í "rollukaup" sem er ekki síður skemmtilegt. Þór í
Skriðu (sem átti frumkvæðið á þessum kroppaskiptum) fékk hana
Krullu frá Reykhólum og við fengum Grímu frá Skriðu.
Passamynd væntanleg.
09.02.2008

Fornhagaféð að sónun lokinni. Verið að sóna
í Skriðu.
Sónað! Allir 10 kvennkropparnir sónaðir til að kanna
fjölda lamba. Það kom nú mjög vel út og í þessum 7 ám og 3
gemlingum voru 19 fóstur....aðeins einn gemlingur með eitt og
allt hitt tvílembt. Það er ekki laust við að húsfrúin hafi
verið bara nokkuð montin af þessari niðurstöðu. Svo verður
að bíða og sjá hvort þessi lambafjöldi muni skila sér í fæddum
lömbum að vori. Kemur allt í ljós. Það var sem sagt
sónað í Skriðu, Lönguhlíð og Fornhaga og vaskur hópur fór bæ af
bæ til að allt gengi sem hraðast fyrir sig.
13.01.2008
Hrúturinn tekinn úr - ásetningsmerki sett í lífgimbrarnar og
hrútinn (sem loksins hætti að vera með stelpueyrnalokk!).
Allir komnir í nýja leikhúsið en hið eldra hefur verið rifið
enda komið hesthús þar sem það stóð. Myndasmiðurinn þarf
greinilega að munda vélina og setja inn mynd af herlegheitunum.
07.12.2007
Hrúturinn kominn í ærnar. Hann eiginlega bjargaði sér um
það sjálfur og fyrst að hann hafði sig yfir til þeirra....vorum
við ekkert að ergja hann á því að taka hann til baka. Það
er bara svona þegar ástin grípur unglingana!
04.11.2007
Rúið - allir kroppar orðnir berrassaðir! 7 ær, 3 lömb og
hrússinn.
06.10.2007
Slátrun - 4 lömb (allt tvílembingar undan gemlingum) og
meðalvigtin 16,6 kg.
05.10.2007

Vigtað! Allir í vogina...með góðu eða illu. Fálki
meira klæddi sig svona í vigtina...eða þannig...enda vigtaði
kappinn 104 kg. veturgamall og það þótti fjárbændum í Fornhaga
bara alls ekkert leiðinlegt.

Klói (kötturinn á bænum) fór á kostum á vigtardaginn og lét
gibburnar alveg vita það að þetta væri hans hús! Hingað
til hafi hann búið einn í því og var ekkert að gera sér dælt við
þessar gemsur heldur slæmdi bara klónum í þær. En í einni
sveiflunni datt hann næstum ofan í króna en náði að bjarga sér
naumlega eins og meðfylgjandi myndir sýna.
23.09.2007
Féð rekið inn og líflömbin valin. Það fá þrjár
stórglæsilegar hvítkollóttar gimbrar að lifa og því fara fjórar
í slátur. Líflömbum, ám og hrút gefið ormalyf.
02.06.2007
Eftir langt og kalt vor er loksins búið að sleppa kindunum á
grænt gras. Klipptar klaufir og gefið ormalyf áður en lagt
var af stað út í síðbúið vorið.
23.05.2007

Það er líf og fjör hjá lömbunum þegar mæðurnar skella sér í
hádegismat!
01.05.2007

Einmuna veðurblíða hefur verið undanfarna daga. Þarna má
sjá Bylgju (1v.) með lömbin sín tvö þær Prinsessu og Perlu.
Þeim var eiginlega um og ó í 25 stiga hitapolli sem myndaðist
við skálann hjá okkur.
24.04.2007
Fengum fyrstu lömbin í dag, tvær hvítar gimbrar, önnur mjög stór
og hin minni. Þarna komu ásetningsgimbrarnar enda undan
stærstu kindinni sem er mikil móðir og stendur sig með stakri
prýði svona miðað við að vera aðeins veturgömul. Reyndar
hafði ein borið áður (11.04.) en því miður náði lambið ekki að
lifa það ferðalag af og var dautt þegar það kom í heiminn.
26.03.2007
|
 |
 |
 |
|
Fjárhirðarnir Auðunn og
Ævar .... |
..sem fara allra sinna
ferða á hjólum... |
Gemsur
með kvöldgjöfina sína. |
|
 |
 |
 |
|
Fálki kynbótahrútur frá
Reykhólum. |
Gjafatími.... |
Ævar glaður með sitt í
húsunum. |
Það er vorlegt úti. Rigning og stilla. Fórum í
gær að undirbúa fæðingardeildina í Fornhaga fyrir
væntanlegar lambasteikur. Ekki fær smíðin nein
fegurðarverðlaun enda efniviðurinn vörubretti og gamlar
hurðir....en notagildið er ótvírætt. Það er það sem
skiptir máli. Sýnist að ef við verðum heppin bera 6
gimbrar af þeim 7 sem þarna eru. Svarthvít blessunin
sem hrúturinn ætlaði að senda til himna í desember....er
líklega geld enda var hún mestan tímann fjarri
hrútskömminni....ein í spili. Þannig að 6 gemsur fá þá
4 herbergi til að deila með sér á fæðingardeildinni.
Tófan hefur
jafn mikinn áhuga á fénu og við. Nýverið voru tófuspor
allt í kringum skálann og ætlaði láfóta sennilegast að ná
sér í steik í gogginn. En sem betur fer komst hún ekki
inn í húsið og nú hafa skyttur sveitarinnar fengið boð um
dýrið sem á sér sjálfsagt ekki viðreisnar von. Á
döfinni er sem sagt að lóga hrút nágrannans, leggja hann sem
agn á grundir Fornhaga II og sitja fyrir saklausu dýrinu.
Það er víst af nógu að taka enda greni í fjallinu fyrir ofan
hjá okkur og því verður sjálfsagt kapphlaup í sumar um
lömbin, þ.e. í hvaða maga þau lenda....okkar eða tófunnar.
19.03.2007

Rúið! Bóngóðir nágrannar halda áfram að gera okkur
lífið auðvelt í sveitinni. Að þessu sinni (eins og svo
oft áður) var það Þór bóndi í Skriðu sem kom og klippti
"snoðið" af gemsunum. Berrassarðir gemlingar
stripplast því um í "brúðuleikhúsinu" þessa dagana.
Sennilegast ekki nema mánuður í burð hjá okkur og nú syttist
í að steikur hoppi um öll tún!
09.12.2006

Þá hafa kindurnar flutt í nýja hýbýlið sitt. Stundum
kallað brúðuleikhúsið þar sem þær eru girtar af með segli og
öllu tilheyrandi til að passa uppá hitann hjá þeim.
Bráðabirgðasmíðin, króin þeirra, varð að miklu mannvirki sem mun
sjálfsagt standa lengur en húsakosturinn sjálfur. Uppi á
annari hæð, með skíthúsi og öllu, hafa þær það virkilega gott og
nú á smáfólkið auðvelt með að kíkja á þær og gogga að þeim ýmsu
góðgæti. Þær eru nú þegar orðnar sérlega hrifnar af brauði og
ætli jólagjöfin þeirra í ár verði þá ekki 5 korna rúgbrauð frá
Brauðgerð Kristjáns. Það finnst þeim sérlega gott sem og
eigendum þeirra. Frábært og næringarríkt brauð.
30.11.2006
Raunir sauðfjárbænda....
Hverjum hefði dottið í hug að sauðfé sé fullt af fordómum?
Það fengum við að reyna á dögunum. Hrútnum hefur verið
sleppt í allar 7 gimbrarnar...jú dálítið snemma en það gerir
aðstöðuleysið sem hrjáir okkur um þessar mundir. Hvað um
það...það er nóg pláss fyrir kærkomin lömb í apríl. Nema
hvað. Hrúturinn ákvað að Svarthvít væri eitthvað öðruvísi
en hinar aflituðu gemmsurnar og lagði hana í einelti. Hann
náði að slasa hana og gekk margsinnis í skrokk á henni og í eitt
skiptið henti hann henni í loft upp! Lambhrúturinn!!!
Þannig að það virðist ekki skipta máli hvaða spendýr eiga í
hlut, sauðfé eður mannfólkið, þeldökkir eiga greinilega erfiðara
uppdráttar í þessu samfélagi sama hvað við röflum og tautum.
Þannig að Svarthvít er núna prinsessan á bauninni, fékk
einkastofu með sér eldhúsi og ætlar að nota tímann vel til að
hvílast og safna kröftum fyrir næstu átök. Hún fékk líka
einhver görótt lyf og smyrsli til að ná sér í ofurkraft eins og
Ástríkur og Steinríkur í sögunni. Hvað hrútinn varðar þá
verðum við að þóknast þeim afbrigðilegu hegðunum sem hann hefur
uppi í sínu kynlífi....annars verður jú engin steik á borðum
næsta haust. Kíkið inn á þennan skemmtilega vef um
sauðfé...
http://www.sauda.vefurinn.is/
26.11.2006
Fórum í Reykhóla á Barðaströnd til að sækja okkur "metfé" sem
síðar mun skaffa vænar steikur á matarborð bænda í Fornhaga II.
Sjö gimbrar og einn hrútur komu í þessari ferð og eru þau öll
hvít og kollótt utan hana Svarthvíti sem Auðunn á. Hún er
svört með hvíta leista og kollótt að sjálfsögðu. Ferðin
gekk vel og tók alla helgina enda gistum við hjá Reykhólabændum,
þeim Jónasi og Bergljótu, sem eru höfðingjar heim að sækja eins
og alltaf.
|
|
|
|
|
|
|
Tekið á því....Grétar með "metfé" í fanginu. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Jónas, Grétar, Svarthvít og Auðunn. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Metféð komið í Fornhaga II. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Jamm....allar hvítar kollóttar nema Svarthvít. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Auðunn hugar að Svarthvít sinni. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sveittir, þreyttir og glaðir bændur eftir "ferðafjárlagið". |
|
|
|
|
|
|
|
|